Archive september 2009

Styttist í námskeið 0

sept.29

Nú eru aðeins nokkrir dagar í námskeið í Eyjafirði. Ég vil því hvetja þá sem hafa áhuga á þessu að hafa samband í síma 8952409 eða með tölvupósti á gummif(hjá)gmail.com

Skráningarfrestur er til 1. október og ég sendi svo þeim sem hafa skráð sig tölvupóst með frekari upplýsingum.

Námskeið í Eyjafirði 3. og 4. október 0

sept.21

Nú er komið að næsta námskeiði. Það verður 3. og 4. október í Eyjafirðinum.

Auglýsingaplagat

Auglýsingaplagat

uti_nams_ak_rett - smellið á tengilin til að fá plagatið í réttri stærð. Það má gjarnan prenta það út og hengja upp á kaffistofum og kennarastofum.

Boðið verður upp á námskeið bæði fyrir grunn- og leikskólakennara. Bæði námskeiðin eru í boði laugardag og sunnudag þannig að þátttakendur geta valið þann dag sem hentar þeim betur.

Námskeiðs lýsing
Námskeið fyrir leikskólakennara.

Laugardag 9:30 - 12:30 eða sunnudag 9:30 - 12:30
Fjallað verður um opin eld, hvernig hann er tendraður og hvernig best er að huga að öryggi í kringum eldinn. Eldað verða yfir eldinum. Kynntar verða aðferðir við að poppa yfir eldi, hvernig á að búa til snúbrauð í poka, hvernig gera á ís í poka og rætt um hvernig hægt er að nota eldinn í skólastarfinu.

Námskeiðið er 3 tímar og kostar 4.000 kónur á mann.

Námskeið fyrir grunnskólakennara.
Laugardag klukkan 13 - 17 eða sunnudag klukkan 13 - 17
Sérsktök áhersla verður á prímusa, ýmsar gerðir og hvernig þær eru notaðar. Kynntir verða svokallaðir hollendingar (Dutch Oven) en þeir eru skemmtileg nýjun á Íslandi og sérstaklega spennandi fyrir eldri nemendur. Fjallað verður um opin eld, hvernig hann er tendraður og búnir til nokkrir réttir fyrir hann.

Námskeiðið er 4 tímar að lengd og kostar 5.000 krónur á mann.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á gummif(hjá)gmail.com og allar upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst eða hringja í síma 8952409. Skráningarfrestur er til 1. október.

Ís í poka 0

sept.20

Það er auðvelt að búa til heimatilbúinn ís án þess að nota frysti. Þetta má gera með því að blanda saman

klaka og salti.

Einfaldasta ílátið sem hægt er að finna er plastpoki. Gott er að nota Zip-lock poka því að það er auðvelt að vinna með þá. Auðvitað má vel nota önnur ílát en þá er gott að reyna að finna t.d. ílát úr málmi s.s. áli því að þau leiða kuldan vel.

Þegar ílátin hafa verið fundin er komið að næsta skrefi.

Búið til einfalda ísblöndu t.d. með þessum uppskriftum

Vanilluís

2 dl rjómi

2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)

1 egg (hrært sundur með gaffli)

1 dl sykur

1 tsk vanilludropar

Súkkulaðiís

2 dl rjómi

2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)

1 dl sykur

4 msk kakóduft

1 tsk vanilludropar

1/8 tsk salt

Kaffiís

2 dl rjómi

2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)

1 dl sykur

2 msk kaffiduft (nescafé)

1 tsk vanilludropar

1/8 tsk salt

Einfaldasta uppskriftin er þó líklega þessi:

2,5 dl mjólk

1 msk sykur

og skvetta af hvaða íssósu sem er (þó ekki ísingu því að hún harðnar í kulda)

Þegar blandan er tilbúin er hún sett í minna ílátið og því lokað vel. Það er svo sett í það stærra en allt um kring er sett blanda af klaka og salti. Best er að nota mjög gróft salt og grófmulinn klaka. Blandan á að vera 1 hluti salt á móti 5 hlutum af klaka. Ílátinu er lokað og það er hrist rólega í 15 til 20 mínútur eða þar til ísinn er frosinn. Klakinn bráðnar og því getur sullast vatn úr ílátinu. Það má hella þessu vatni út og bæta í meiri klaka og salt blöndu ef að ísinn er ekki nægilega frosinn.

Hvernig virkar þetta svo?

Ef að allt væri gert með sama hætti þá mundi klakinn bráðna við 0°C. Þó að þetta hitastig sé við frostmark er það ekki nóg til að frysta ísinn. Þegar salt er sett saman við þá bráðnar klakinn hins vegar mun hraðar. Þessi hröðu varmaskipti verða til þess að hitastigið í ílátinu fellur niður fyrir -2.7°C sem er það hitastig sem ísinn þarf til að frjósa. Með salt og klaka blöndu 1:5 þá er hægt að ná hitanum niður í -11 til -13°C.

Allar lausnir leitast við að ná varmajafnvægi. Þegar klakinn bráðnar í ílátinu okkar er hann í raun að hitna.

Til þess þarf hann að nota hitan úr ísblöndunni. Með því að hraða þessu ferli og auka kælingu klakans þá dregur hann hitan úr íslblöndunni svo hratt að hún nær að frjósa.

Útieldhúsið frá KHÍ 0

sept.20

Hérna er slóðin á lokaverkefnið mitt frá því í kennó. Ég hef aldrei gefið út verkefnið (nema fyrir kennó á sínum tíma) þar sem mér fannst það ekki komið í úgáfuhæft ástand en fólki er frjálst að skoða það og nýta sér þær hugmyndir sem þar koma fram í leik eða starfi. Svo er aldrei að vita nema þetta komist í útgáfu síðar.

Forsíða verkefnisins myndin er tekin af Völundi Jónssyni ljósmyndara

Forsíða verkefnisins myndin er tekin af Völundi Jónssyni ljósmyndara

http://www.skemman.is/handle/1946/394

Frábær heimsók frá HÍ 0

sept.20

Ég fékk að kenna nemum í tómstundafræði við HÍ í dag. Öflugur hópur um 25 nema og kennara sem voru í hjólaferð stoppuðu hjá mér í dag. Ég sýnidi þeim grunnhandtökin í því að kveikja eld og svo bökuðum við eina köku í hollendingnum, elduðum okkur fiskiböggla og bjuggum til ís. Þau voru öll svo áhugasöm og spennti yfir þessu og náminu í heild að ég get ekki annað en þakkað þeim fyrir komuna. Það jafnast ekkert á við það að kenna þeim sem hafa áhuga á að læra. Ég tók því miður engar myndir (gleymi því alltaf þó að ég taki myndvélina samviskusamlega með) en vona að ég fái nokkrar frá þátttakendunum.

Takk fyrir mig.

Næsta námskeið fyrir norðan 0

sept.18

Nú er það að komast á hreint að næsta námskeið fyrir norðan verður helgina 7.-8. október. Boðið verður upp á svipað fyrirkomulag og síðast þ.e. námskeið bæði á laugardegi og sunnudegi svo að fólk geti valið og námskeið fyrir leikskólakennara annars vegar og grunnskólakennara hinsvegar. Námskeiðin verða að sjálfsögðu háð þátttöku en ég á ekki von á öðru en að þau verði öll vel sótt. Auglýsingar fara í skólana strax eftir helgi og þá verður hægt að skrá sig í gegnum tölvupóst.

Ég er farin að hlakka til.

Frá Ameríkuferð 0

sept.15

Svefntjaldið mitt

Svefntjaldið mitt

Hérna eru nokkrar myndir frá námsferð sem að ég fór til Ameríku vorið 2008. Ég sótti þar námskeið hjá Royal Tine leiðsögumanna og ferðakokka skólanum. Venjulega þjálfar skólinn leiðsögumenn og kokka fyrir veiðiferðir á svæði þar sem ekki má fara með vélknúnum farartækjum. Ég fékk hinsvegar að fljóta með á kokkanámskeiðið enda borgandi útlendingur.

Ég var því tvær vikur í útielgu þar sem ég og kennarinn minn elduðum þrjár máltíðir á dag fyrir leiðsögumannaskólan. Það voru 12 nemendur tveir kennarar og við tvö sem vorum í mat. Þetta var því sæmilegur hópur sem að sat að snæðingi í hverri máltíð.

Verðandi leiðsögumenn

Verðandi leiðsögumenn

Ég fékk að njóta landslagsins í fjöllum Montanafylkis, frábærra gestgjafa sem vildu allt fyrir mig gera og að sjálfsögðu frábærs matar.

Eldavélin, kyndingin og kaffikannan

Eldavélin, kyndingin og kaffikannan

Það var alltaf eldur í kamínunni enda féll hitastigið niður að frostmarki á næturnar. Við kveiktum upp á morgnana um klukkan 6 og slökktum ekki í fyrr en eftir kvöldmat um klukkan 21. Fyrsta verk á morgnanna var að hella upp á alvöru kúrekakaffi. Það var svo heitt á könnunni allan dagin og fram yfir kvöldmat. Ótrúlegt en satt þá var þetta sama kaffið allan daginn og það var skrambi gott.

Eldhúsið

Eldhúsið

Það þarf að hafa stórt eldhúsborð þegar maður er með 16 í mat. Það skemmir heldur ekki fyrir að hafa nóg pláss til að vinna á þess á milli.

Epla Crumble

Epla Crumble

Það var mjög gaman að geta unnið með ýmiskonar eldunnartæki eins og til dæmis Hollendingin eða Ducth Oven.

Næstu verkefni 0

sept.15

Næst á dagskrá hjá útieldhúsinu er vinna við kennslumyndbandsgerð. Ég er núna í hugmyndavinnu varðandi útikennslumyndbönd og langar því að byðja þá sem hafa áhuga að senda mér línu á gummif(hjá)gmail.com hugmyndir. Hvað viljið þið sjá í kennsluefni í heimilisfræði og í útikennslu. Hvernig myndbönd ætti að búa til sem að hjálpuðu ykkur að fara af stað í útikennslunni. Ættu þetta að vera myndbönd sem kenna ákveðnar uppskriftir eða praktísk atriði í útikennslunni. Ættu þau að vera fyrir nemendur eða fyrir kennara.

Endilega sendið mér línu og segið til.

Nýtt myndband - tilbúið 0

sept.11

Myndbandið er eftir mig en tónlistin er eftir Guðmund Pálsson - njótið vel!


Nýtt merki útieldhús.is 0

sept.7

Nú er hönnuðurinn minn hann Völundur búin að klára nýtt merki síðunnar. Svona lítur þetta þá út:

merki útieldhús.is

merki útieldhús.is

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com