Archive október 2009

Myndir frá Tómstundarfræðinemendum við HÍ 0

okt.16

Þessi hópur kom til mín í heimsókn fyrir nokkrum vikum og fékk að prófa smá útieldun. Þau fóru svo í ferð þar sem eitt af verkefnunum var að elda spennandi hádegisverð á prímus. Hérna eru nokkrar myndir frá þeirri ferð.

http://picasaweb.google.com/utinam09/Utieldunarfesteval#

Námskeið á höfuðborgarsvæðinu 0

okt.5

Ég er nú farin að undirbúa námskeið í útikennslu og útieldun sem að haldið verður á höfuðborgarsvæðinu.
Námskeiðin verða í svipuðum dúr og þau sem haldin hafa verið fyrir norðan með áherslu á eldinn, að kveikja eld og vinna með hann. Að sjálfsögðu fer engin svangur af námskeiðinu.
Þá er einnig í undirbúningi námskeið sem að hægt er að fara með til skólanna. Þau væru þá hugsuð þannig að skólinn geti keypt námskeið fyrir alla kennarana sína. Ég kem þá eftir samkomulagi og við notum þá aðstöðu sem fyrir er og verðið er ekki háð þátttöku.
Ég vona að þessi námskeið falli í góðan jarðveg.

Frábært námskeið á Grenivík 0

okt.4

Um helgina hélt ég námskeið í útieldun fyrir kennara á Genivík. Ég fékk reyndar nokkra kennara í viðbót frá Litlulaugaskóla og frá Lundaskóla en aðalega voru þetta kennarar frá gunnskólanum og leikskólanum á Grenivík. Við notuðum nýtt eldstæði sem að kennrarnir eru að útbúa við skólan og nutum þess að vera við eldamennskuna í frábæru veðri.

Matseðillinn var fjölbreyttur að vanda. Við bökuðum brauð í Hollendingnum, bjuggum til laxakökur í forrétt, svínamedalíur með eplum, rúsínum og steiktu grænmeti í aðalrétt og bakaðar perur með ís eftrirétt. Ég hafði verið með smá áhyggjur af veðrinu en þær reyndust algjörlega óþarfar. Raunar svo óþrfar að við nutum þess að borða ísinn og perurnar úti í sólskyni og frábæru veðri.

Eldstæðið við Genivíkurskóla. Allt í gangi

Eldstæðið við Genivíkurskóla. Allt í gangi

Við pönnusteiktum smá brauð með laxinum og bjuggum til enfalda sósu úr sýrðum rjóma, grísku jógúrti og dilli.

Brauðið tilbúið.

Brauðið tilbúið.

Á meðan við biðum eftir perunum var smá tími til að smakka brauðið. Uppskriftin var frá Anítu frænku.

Flottur hópur í fræabæru veðri með ótrúlegt útsýni

Flottur hópur í fræabæru veðri með ótrúlegt útsýni

Ég þakka fyrir mig. Það eru forréttindi að fá að koma á eins flottan stað og Grenivík og njóta þess að vera úti að elda með jafn frábærum hópi. Ég hlakka til að fá að koma aftur.

Heimsókn frá kennurum í hverfinu 0

okt.3

Ég fékk heimsókn frá kennurum í skólahverfi Laugarnesskóla á föstudaginn. Það var starfsdagur hjá þeim (en ekki hjá mér) svo að þeir fengu að taka þátt í kennslustund með 4. bekk. Við fórum út að eldstæði og gerðum kakó og popp. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og ég er ekki frá því að kennararnir hafi skemmt sér mjög vel.

Ég hlakka til að sjá þá alla aftur fljótlega.

Námskeið í Eyjafiði fært til Grenivíkur 0

okt.1
Vegna ónógrar þátttöku þá varð ég að færa námskeiðið frá Aldísarlundi til Grenivíkur. Hérna er útdráttur úr bréfi sem ég sendi á þátttakendur:
Til þess að þurfa ekki að fella alveg niður námskeiðin hef ég því ákveðið að færa það á Grenivík. Með því næst nægileg þátttaka til þess að ég þurfi ekki að borga með mér norður. Þar sem það er ekki langt að fara frá Akureyri á Grenivík langar mig því að bjóða ykkur að koma þangað. Ég get því miður ekki haldið öll námskeiðin sem að boðið var upp á en ég mun laga námskeiðið að bæði leik og grunnskólakennurum svo að allir ættu að fá eitthvað (og jafnvel meira) heldur en auglýst var. Við munum byrja klukkan 11:00 og reyna þannig að vera mitt á milli auglýstum tímum fyrir leik og grunnskólakennara.
Ég vona innilega að þessar breytingar verði ekki til þess að þú þurfir að hætta við.
Upplýsingar um námskeiðið.
Við byrjum klukkan 11:00 við Grenivíkurskóla (það á að vera auðvelt að finna hann þegar ekið er inn í Grenivík). Fyrir leiðbeingar að skólanum eða að Grenivík bendi ég á heimasíu ja.is www.ja.is en þar er hægt að fá leiðarlýsingu og sjá staðsetningar á korti.
Veðurspáin gerir ráð fyrir einhverri úrkomu, að því er mér skilst er byrjað að snjóa í Grenivík svo að ég mæli með því að þú takir með þér hlý föt og jafnvel einvher regnhled föt. Ég er alltaf bæði með dúnúlpuna og regn vindhelt. Bæði buxur og jakka.
Við munum borða saman það sem við eldum og það er ekki vitlaust að taka með góðan bolla (til þess að maður þekki sinn eigin) t.d. úr plasti. Önnur áhöld kem ég með.
Ef að það eru fleiri áhugasamir um námskeiðið þá hvet ég þá til að koma með þér til Grenivíkur það er bara gott að vita af því til að hægt sé að kaupa inn fyrir þá.
Enn og aftur þá vona ég að þetta verði til þess að þú getir komið á námseiðið. Skráningin var mun slakari en ég gerði ráð fyrir og þess vegna reyni ég að bregaðst við með þessum breytingum. Það er hægt að fá frekari upplýsingar eða útskýringar í síma 8952409.

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com