Námskeið í útieldun september 2011 0
Útieldun í samstarfi við útieldhús.is
Útieldhús.is hefur undanfarin ár boðið upp á námskeið í útieldun. Námskeiðin hafa verið vel sótt, sérstaklega af kennurum sem að hyggjast nota útieldunina í skólastarfinu.
Vegna fjölda óska hefur verið ákveðið að bjóða upp á tvö námskeið dagana 3. og 4. september.
Á þessum námskeiðum er kenndur grunnurinn í útieldun bæði á opnum eldi, yfir kolum og á prímus.
Áhugasamir geta smellt hér til að skrá sig á námskeiðið.
Námskeiðið er 3 klukkustundir að lengd. Þau hefjast klukkan 10:00 og standa til 13:00.
Námskeiðið kostar 8000 krónur og greiðist að fullu áður en námskeiðið hefst.
Upplýsingar um greiðslur eru sendar með staðfestingarpósti að lokinni skráningu.
Innifalið í námskeiðinu er kennsla, allt hráefni í 5-6 rétti og allur búnaður sem nota þar.
Þátttakendur þurfa einungis að koma klæddir til útiveru.
Námskeiðið er haldið á lóð Laugarnesskóla í Reykjavík.
Dagskrá námskeiðsins:
Kveikjum eld. Reglur og ráð við eldinn.
Hollendingurinn, spennandi nýjung í útieldun.
Prímusinn og helstu umgengnisreglur við hann.
Eldaðir eru 5-6 réttir sem að eru borðaðir að loknu námskeiðinu.
ATHUGIÐ AÐ EKKI ERU NOTAÐAR SÖMU UPPSKTIFTIR OG Á FYRRI NÁMSKEIÐUM.
