Námskeið í Eyjafirði 3. og 4. október 0
Nú er komið að næsta námskeiði. Það verður 3. og 4. október í Eyjafirðinum.
uti_nams_ak_rett - smellið á tengilin til að fá plagatið í réttri stærð. Það má gjarnan prenta það út og hengja upp á kaffistofum og kennarastofum.
Boðið verður upp á námskeið bæði fyrir grunn- og leikskólakennara. Bæði námskeiðin eru í boði laugardag og sunnudag þannig að þátttakendur geta valið þann dag sem hentar þeim betur.
Námskeiðs lýsing
Námskeið fyrir leikskólakennara.
Laugardag 9:30 - 12:30 eða sunnudag 9:30 - 12:30
Fjallað verður um opin eld, hvernig hann er tendraður og hvernig best er að huga að öryggi í kringum eldinn. Eldað verða yfir eldinum. Kynntar verða aðferðir við að poppa yfir eldi, hvernig á að búa til snúbrauð í poka, hvernig gera á ís í poka og rætt um hvernig hægt er að nota eldinn í skólastarfinu.
Námskeiðið er 3 tímar og kostar 4.000 kónur á mann.
Námskeið fyrir grunnskólakennara.
Laugardag klukkan 13 - 17 eða sunnudag klukkan 13 - 17
Sérsktök áhersla verður á prímusa, ýmsar gerðir og hvernig þær eru notaðar. Kynntir verða svokallaðir hollendingar (Dutch Oven) en þeir eru skemmtileg nýjun á Íslandi og sérstaklega spennandi fyrir eldri nemendur. Fjallað verður um opin eld, hvernig hann er tendraður og búnir til nokkrir réttir fyrir hann.
Námskeiðið er 4 tímar að lengd og kostar 5.000 krónur á mann.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á gummif(hjá)gmail.com og allar upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst eða hringja í síma 8952409. Skráningarfrestur er til 1. október.



