Tag bækur

Önnur góð útieldunabók 0

ág.25

Campers´s guide to outdoor cooking
Kápa Campers Guide…

John G. Ragsdale
Fæst hjá Amazon.com
Kiljubrot 175 blaðsíður
Svarthvítar ljósmyndir til skýringar
Auðveldur og aðgengilegur texti
“Fyrstu 75 blaðsíðurnar fjalla um tók tæki og aðferðir, hér er því verið að fá mikið fyrir peninginn.”

John G. Ragsdale hefur um árabil verið sjálfboðaliði hjá skátahreyfingunni. Eins og með marga aðra áhugamenn um útieldun hefur það starf veitt honum gríðarlega reynslu. Sú reinnsla kemur líka vel fram í þessari bók enda er hún líklega skrifuð með skáta og skátaforingja í huga. Þetta kemur sér vel fyrir okkur enda er bókin bæði auðlesin og aðgengileg. Hún tekur á öllu er varðar útieldun, frá tækjum og tólum til uppskrifta. Myndirnar í bókinni eru góðar og sýna fjölmörg tæki, þar á meðal mörg sem við höfum ekki séð hingað til á Íslandi. Hugmydirnar í bókinn eru góðar og uppskriftirnar, sem er yfir 200, eru einfaldar og fjölbreittar.
Það er auðvelt að mæla með þessari bók, sérstaklega fyrir byrjendur. Hana má skoða á Amazin.com með því að smella hér.

Góð útieldunarbók 0

ág.25

Cooking in the Outdoors eftir Ckiff Jacobson
Kápa cooking in the outdoors

Cliff Jacobson
Fæst hjá Amazon.com
Kiljubrot 71 blaðsíður
Teiknaðar skýringarmyndir
Auðveldur og aðgengilegur texti
“Vel skipulögð, aðgengileg og fróðleg bók”

Cliff  Jacobson er, eins og margir áhugamenn um útieldun í Bandaríkjunum, atvinnu leiðsögumaður. Nánar tiltekið Kanó-leiðsögumaður. Þessi atvinna hefur gefið honum frábært tækifæri til að þróa aðferðir, uppskriftir og hugmyndir fyrir útieldhúsið.
Bókin kemur í þægilegu broti og er auðveld aflestrar. Henni er skipt í kafla um eldhúsið, uppskriftir erftir því hvenær dags þær henta og svo er kafli með góðum ráðum bæði fyrir geymslu matvæla og við eldamennskuna.
Ekki aðeins eru uppskriftirnar góðar, kaflarnir um útbúnað eldhússins og góðu ráðin er tilvalin fyrir byrjendur.
Ég mæli hiklaust með þessari bók. Smellið hér til að skoða hana á Amazon.com.

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com