Bensín prímus 0
Bensín-prímusar er samheiti yfir margar gerðir prímusa sem nota kolefniseldsneyti s.s. bensín, steinolíu, flugvélabensín, hreinsað bensín eða eitthvað annað í ætt við það. Þessum prímusum má skipta í tvo flokka. Svokallaðar alætur sem brenna mörgum gerðum eldsneytis (það eru jafnvel til prímusar af þessari gerð sem brenna líka gasi) og svo prímusar sem eru hannaðir fyrir eina gerð af eldsneyti. Í seinni tíð hefur hreinsað bensín orðið vinsælasti eldsneytisgjafinn þrátt fyrir að vera mjög dýrt en alæturnar eru líka að verða mun vinsælli. Þær eru samt yfirleitt með dýrari gerðum af prímusum.
Langflestir þessara prímusa eiga það sameiginlegt að þá þarf að hita fyrir notkun. Þeir virka þannig að eldsneytinu er veitt í gegnum pípu sem liggur við eða nálægt brennsluhausnum. Þegar pípan hefur hitnað og prímusinn er í gangi hitar hann eldsneytið áður en það kemst alla leið og breytir því þannig í gufu. Það brennur því af meiri krafti, með meiri hita og mun hreinna þegar það kemur í brennsluhausinn.
Einn af kostum þessara prímusa er að eldsneytishólfið er yfirleitt í sér flösku. Það er þá hægt að taka það frá prímusnum eftir notkun. Þá er eldsneytið ekki geymt undir þrýstingi líkt og þegar um gas er að ræða sem gerir alla meðhöndlun mun öruggari. Þetta krefst þess þó að notandinn setji þrýsing á flöskuna með þar til gerðri pumpu áður en hægt er að nota prímusinn. Þrýstingurinn er hækkaður með því að pumpa lofti í flöskuana sem þrýsir eldsneytinu út um ventilinn og í prímusinn.
Nýjar gerðir af þessum prímusum eru orðnar mjög áræðanlegar. Hægt er að stýra hitanum með því að opna eða loka fyrir flæði eldsneytisins en það verður þó að pumpa reglulega til að halda uppi þrýsingnum.
Þessir prímusar hafa marga kosti en nokkra galla.
Kostir
- Eldsneytið er auðfengið
- Prímusinn er áræðanlegur (sérstaklega ef notað er hreinsað bensín).
- Kuldi hefur lítil áhrif á hita eða virkni
- Þá má taka í sundur og geyma í sitthvoru lagi
- Auðvelt er að geyma eldsneytið og það er frekar öruggt
Gallar
- Þeir eru flóknir með mörgum hreifanlegum hlutum
- Þeir eru dýrir
- Eldsneyti (sérstaklega hreinsað bensín) er oft dýrt.
- Þeir sóta ef notað er óhreint eldsneyti
- Þá þarf að hita fyrst
- Þá þarf að pumpa reglulega
- Þeir eru oft háværir
Þó að bensín-prímusar virðist frekar flókin tæki þá er yfirleitt auðvelt að læra á þá og tileinka sér virkni þeirra. Þega kemur að eldunareiginleikum þeirra þá eru fáir prímusar sem standa þeim jafnfætis. Bensín-prímusar gefa yfirleitt frá sér mun meiri hita en sambærilegir primusar auk þess sem þeir þola veður og vind mun betur en t.d. gas- prímusar. Þeir eiga það þó til að vera háværir auk þess sem þeir eru líklega aðeins of flóknir til að vera góð kennslutæki. Sé hins vegar markmiðið að fara í langar ferðir með nemendum þá getur verið kostur að taka með sér bensín-prímus enda taka þeir yfirleitt minna pláss heldur en sambærilegt magn af gasi.
Þegar prímusarnir og eldsneyti þeirra er haft um hönd eru nokkrar reglur sem gott er að fara eftir.
- Munið að bensín er eldfimt og spilliefni. Farið því mjög varlega þegar skipt er um brúsa, þeir fylltir eða pumpu komið fyrir.
- Mjög lítið magn af bensíni eða olíu þarf til að spilla mat og vatni. Það verður því að halda þessum hlutum vel aðskildum.
- Gætið þess að kynna ykkur leiðbeiningar mjög vel. Suma bensín-prímusa þarf að hita fyrir notkun.
- Farið varlega með opin eld. Passið að prímusinn sé stöðugur og bensínflaska ekki of nálægt.
- NOTIÐ ALDREI VATN TIL AÐ SLÖKKVA Á PRÍMUSNUM.
- Eldið ekki inni með bensín- prímus. Myndast geta hættulega gufur og við hitun er oft stór logi sem skemmt getur tjöld eða föt.
