sept.15

Svefntjaldið mitt
Hérna eru nokkrar myndir frá námsferð sem að ég fór til Ameríku vorið 2008. Ég sótti þar námskeið hjá Royal Tine leiðsögumanna og ferðakokka skólanum. Venjulega þjálfar skólinn leiðsögumenn og kokka fyrir veiðiferðir á svæði þar sem ekki má fara með vélknúnum farartækjum. Ég fékk hinsvegar að fljóta með á kokkanámskeiðið enda borgandi útlendingur.
Ég var því tvær vikur í útielgu þar sem ég og kennarinn minn elduðum þrjár máltíðir á dag fyrir leiðsögumannaskólan. Það voru 12 nemendur tveir kennarar og við tvö sem vorum í mat. Þetta var því sæmilegur hópur sem að sat að snæðingi í hverri máltíð.

Verðandi leiðsögumenn
Ég fékk að njóta landslagsins í fjöllum Montanafylkis, frábærra gestgjafa sem vildu allt fyrir mig gera og að sjálfsögðu frábærs matar.

Eldavélin, kyndingin og kaffikannan
Það var alltaf eldur í kamínunni enda féll hitastigið niður að frostmarki á næturnar. Við kveiktum upp á morgnana um klukkan 6 og slökktum ekki í fyrr en eftir kvöldmat um klukkan 21. Fyrsta verk á morgnanna var að hella upp á alvöru kúrekakaffi. Það var svo heitt á könnunni allan dagin og fram yfir kvöldmat. Ótrúlegt en satt þá var þetta sama kaffið allan daginn og það var skrambi gott.

Eldhúsið
Það þarf að hafa stórt eldhúsborð þegar maður er með 16 í mat. Það skemmir heldur ekki fyrir að hafa nóg pláss til að vinna á þess á milli.

Epla Crumble
Það var mjög gaman að geta unnið með ýmiskonar eldunnartæki eins og til dæmis Hollendingin eða Ducth Oven.
ág.25
Campers´s guide to outdoor cooking

John G. Ragsdale
Fæst hjá Amazon.com
Kiljubrot 175 blaðsíður
Svarthvítar ljósmyndir til skýringar
Auðveldur og aðgengilegur texti
“Fyrstu 75 blaðsíðurnar fjalla um tók tæki og aðferðir, hér er því verið að fá mikið fyrir peninginn.”
John G. Ragsdale hefur um árabil verið sjálfboðaliði hjá skátahreyfingunni. Eins og með marga aðra áhugamenn um útieldun hefur það starf veitt honum gríðarlega reynslu. Sú reinnsla kemur líka vel fram í þessari bók enda er hún líklega skrifuð með skáta og skátaforingja í huga. Þetta kemur sér vel fyrir okkur enda er bókin bæði auðlesin og aðgengileg. Hún tekur á öllu er varðar útieldun, frá tækjum og tólum til uppskrifta. Myndirnar í bókinni eru góðar og sýna fjölmörg tæki, þar á meðal mörg sem við höfum ekki séð hingað til á Íslandi. Hugmydirnar í bókinn eru góðar og uppskriftirnar, sem er yfir 200, eru einfaldar og fjölbreittar.
Það er auðvelt að mæla með þessari bók, sérstaklega fyrir byrjendur. Hana má skoða á Amazin.com með því að smella hér.
ág.25
Cooking in the Outdoors eftir Ckiff Jacobson

Cliff Jacobson
Fæst hjá Amazon.com
Kiljubrot 71 blaðsíður
Teiknaðar skýringarmyndir
Auðveldur og aðgengilegur texti
“Vel skipulögð, aðgengileg og fróðleg bók”
Cliff Jacobson er, eins og margir áhugamenn um útieldun í Bandaríkjunum, atvinnu leiðsögumaður. Nánar tiltekið Kanó-leiðsögumaður. Þessi atvinna hefur gefið honum frábært tækifæri til að þróa aðferðir, uppskriftir og hugmyndir fyrir útieldhúsið.
Bókin kemur í þægilegu broti og er auðveld aflestrar. Henni er skipt í kafla um eldhúsið, uppskriftir erftir því hvenær dags þær henta og svo er kafli með góðum ráðum bæði fyrir geymslu matvæla og við eldamennskuna.
Ekki aðeins eru uppskriftirnar góðar, kaflarnir um útbúnað eldhússins og góðu ráðin er tilvalin fyrir byrjendur.
Ég mæli hiklaust með þessari bók. Smellið hér til að skoða hana á Amazon.com.