Tag gas

Gas prímus 0

ág.25

Þetta eru primusar sem nota gas í einhverju formi sem eldsneyti. Þessi tæki eru íslendingum ekki ókunn enda höfum við notað þau um árabil bæði á heimilum og í ferðalögum. Oftast nota gas-primusar própangas, bútangas eða blöndu þessara beggja.

Fjölmargar útgáfur af gasprímusum hafa veið notaðar hér á landi með góðum árangir. Það er þó ekki langt síðan einnota kútar fóru að mestu af markaðnum og í staðin komu kútar sem hægt er að skrúfa af og á eftir þörfum. Hægt er að fá þessa kúta í mismunandi stærðum og frá fjölmörgum framleiðendum en þeir hafa flestir sama skrúfganginn og nýtast því á flesta gas-prímusa sem útbúnir eru með skrúfgangi.

Gas-prímusar eru mjög einföld tæki. Þar sem gasið er ekki fljótandi nema undir þrýstingi þá þarf ekki sérstakan búnað til að það brenni vel. Því er einfaldlega hleypt út úr kútunum og inn í brunahaus prímusins sem er alsettur litlum götum. Á leiðinni fer það úr fljótandi fasa yfir í loftfasa og þegar það kemur út úr brunahausnum er hægt að kveikja í því. Magni gassins sem kemur úr kútnum og þar með hitanum er hægt að stjórna með einfaldri loku.

Gas-prímusar hafa því marga kosti en nokkra galla.

Kostir

  • Einfaldir í notkun
  • Auðvelt að nálgast eldsneyti
  • Auðvelt að stjórna hita
  • Auðvelt að kveikja og skökkva
  • Oftast litlir og léttir

Gallar

  • Eldsneyti frekar dýrt
  • Geta verið óstöðugir
  • Þola illa vind og veður
  • Geta virkað illa í kulda

Gas-primusar sem fást á íslandi eru yfirleit góð vara. Sé verið að huga að kennslu gæti verið gott að velja örlítið dýrari prímus þar sem þeir eru yfirleitt betri og endingarmeiri. Þá gæti verið gott að velja prímus sem tengist gaskútnum með slöngu en skrúfast ekki beint ofaná hann. Þett býður upp á mun meiri stöðugleika auk þess sem pottar og pönnur eru nær jörðinni og því minni hætta á slysum ef þeirr detta eða færast. Dreifing logans og stærð brunahaussins skiptir miklu máli þegar kemur að eldunareiginleikunum. Reynið að velja prímus sem hefur stóran brunahaus þar sem hann þolir meiri vind hitar hraðar. Þá getur verið gott að búa til skjól fyrir prímusinn til að verja hann fyrir vindi.

Þar sem frostmark gas er mjög lágt (um -1°C) þá virka þeir ekki mjög vel í kulda. Við lágt hitastig eða um 5°C fer gasið að renna mun hægar. Þetta getur valdið litlum loga eða flökti í loganum sem hægir á allri eldun. Sé ætlunin að elda mikið í kulda eða um vetur getur því verið ráð að nota aðrar gerðir af prímusum heldur en gas.

Nokkrar reglur er gott að hafa í huga þegar notaður er gasprímus.

§ Notið aðeins nýja gaskúta sem eru óbeyglaðir og óryðgaðir.

§ Gætið þess að prímusinn sé stöðugur og láréttur til að hann detti ekki eða pottar detti ekki af honum.

§ Skrúfið ekki meira frá prímusnum heldur en nauðsynlegt er.

§ Gætið þess að slökkva alltaf á honum, líka þegar loginn hefur blásið af. Gas hefur einkennandi lykt en það getu verið hættulegt við innöndun.

§ Farið varlega með prímusa sem verið er að nota því þeir hitna mjög mikið. Leyfið þeim alltaf að kólna áður en þeir eru handfjatlaðir.

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com