Tag hollendingur

Tómatbrauð frá 13. maí 0

maí14

Hérna kemur brauðuppskriftin sem að við notuðum þann 13. maí. Þessi uppskrift er ótrúlega einföld og það má auðveldlega breyta henni í eitthvað annað.

Hráefni:

6 dl volgt vatn
1 msk hunang
1 msk ger
2-3 msk tómatpúrra (það má líka nota pizzasósu)
um 1 kg hveiti (u.þ.b. 14 dl)
1 tsk salt
2 msk olía (ólífu er bragbetri)

Aðferð:

Ég geri þetta gjarnan í matvinnsluvélinni en það má vel gera þetta í höndum eða hrærivél með deigkrók.

Vatni, geri, hunangi og púrru blandað saman. hveitinu bætt út í ásamt salti og olíu. Þetta er hrært eða hnoðað vel saman. Það er mikilvægt að hnota þetta rækilega ef það er gert í höndum má gera ráð fyrir um 10 mínútum um 5 í vélinni.

Deigið er látið hefast í um klukkustund og slegið niður og hnoðað aftur í smá stund. Látið hefast aftur og slegið aftur niður. Þá er það tilbúið að fara í pottinn (við notuðum Dutch Oven eða Hollending). Annars á plötu þar sem það færi að hefast í 30 mínútur. Svo er þetta sett yfir hitan og bakað í 30 til 40 mínútur. Ef að þetta fer inn í ofn myndi ég stilla hitan á 180 til 190°C og ef til vill baka þetta aðeins í 30 mínútur. Þetta er samt frekar stórt brauð og því er betra að nota augað til að meta tíman.

Þessu brauði má svo breyta í hvað sem er, skipta út púrrunni fyrir pizzakrydd eða setja kúmen, jafnvel nota einhverjar sósur eins og pestó. Grunnurinn er alltaf sá sami. Að sjálfsögðu má líka breyta þessu í heilhveitibrauð og skipa út hluta af hveitinu fyrir heilhveiti.

Hollendingurinn - Dutch Oven 0

nóv.9

Ég fékk bréf þar sem ég var beðin um að setja inn upplýsingar um Dutch Oven eða Hollending eins og það hefur verið kallað hérna heima.

Hollendingar eru steypujárnspottar sem að hafa stutta fætur, þétt lok með smá brún og eru notaðir meðal annars til að baka í. Þá má reyndar nota til að elda hvað sem er í en vegna þess hvernig þeir eru hannaðir (það er að hægt er að setja kol bæði undir þá og ofnaá) þá er auðvelt að baka í þeim.

Þar sem ekki eru til neinar upplýsingar á íslensku svo ég viti til læt ég fylgja með nokkra tengla um efnið á ensku.

Wikipedia stendur alltaf fyrir sínu og gott er að byrja þar.

http://en.wikipedia.org/wiki/Dutch_oven

IDOS er góður staður til að byrja að fræðast.

http://www.idos.com/

Svo má finna tugir bóka um efnið á Amazon eða sambærilegum vefsíðum.

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com