sept.20
Það er auðvelt að búa til heimatilbúinn ís án þess að nota frysti. Þetta má gera með því að blanda saman
klaka og salti.
Einfaldasta ílátið sem hægt er að finna er plastpoki. Gott er að nota Zip-lock poka því að það er auðvelt að vinna með þá. Auðvitað má vel nota önnur ílát en þá er gott að reyna að finna t.d. ílát úr málmi s.s. áli því að þau leiða kuldan vel.
Þegar ílátin hafa verið fundin er komið að næsta skrefi.
Búið til einfalda ísblöndu t.d. með þessum uppskriftum
Vanilluís
2 dl rjómi
2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)
1 egg (hrært sundur með gaffli)
1 dl sykur
1 tsk vanilludropar
Súkkulaðiís
2 dl rjómi
2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)
1 dl sykur
4 msk kakóduft
1 tsk vanilludropar
1/8 tsk salt
Kaffiís
2 dl rjómi
2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)
1 dl sykur
2 msk kaffiduft (nescafé)
1 tsk vanilludropar
1/8 tsk salt
Einfaldasta uppskriftin er þó líklega þessi:
2,5 dl mjólk
1 msk sykur
og skvetta af hvaða íssósu sem er (þó ekki ísingu því að hún harðnar í kulda)
Þegar blandan er tilbúin er hún sett í minna ílátið og því lokað vel. Það er svo sett í það stærra en allt um kring er sett blanda af klaka og salti. Best er að nota mjög gróft salt og grófmulinn klaka. Blandan á að vera 1 hluti salt á móti 5 hlutum af klaka. Ílátinu er lokað og það er hrist rólega í 15 til 20 mínútur eða þar til ísinn er frosinn. Klakinn bráðnar og því getur sullast vatn úr ílátinu. Það má hella þessu vatni út og bæta í meiri klaka og salt blöndu ef að ísinn er ekki nægilega frosinn.
Hvernig virkar þetta svo?
Ef að allt væri gert með sama hætti þá mundi klakinn bráðna við 0°C. Þó að þetta hitastig sé við frostmark er það ekki nóg til að frysta ísinn. Þegar salt er sett saman við þá bráðnar klakinn hins vegar mun hraðar. Þessi hröðu varmaskipti verða til þess að hitastigið í ílátinu fellur niður fyrir -2.7°C sem er það hitastig sem ísinn þarf til að frjósa. Með salt og klaka blöndu 1:5 þá er hægt að ná hitanum niður í -11 til -13°C.
Allar lausnir leitast við að ná varmajafnvægi. Þegar klakinn bráðnar í ílátinu okkar er hann í raun að hitna.
Til þess þarf hann að nota hitan úr ísblöndunni. Með því að hraða þessu ferli og auka kælingu klakans þá dregur hann hitan úr íslblöndunni svo hratt að hún nær að frjósa.
ág.25
Það er fátt eins flott og að fá sér ís þar sem það á ekki að vera hægt. Það er auðvelt að búa til ís við allar aðstæður ef að maður hefur nokkur lykil hráefni við hendina. Ég hef bæði notað þess aðferð í skólanum (þar sem þetta er alltaf jafn vinsælt), í skátastarfinu og við ýmis önnur tækifæri.
Aðferðin:
Hún er einföld, það sem þarf að hafa við hendina eru plastpokar, klaki, salt, og ísblandan (hún getur verið heimatilbúin, aðkeypt, einföld eða flókin).
Mér finnst best að nota Zip-lock poka af mismunandi stærð. Þá finnst mér betra að hafa þá úr þykkara plastinu (freezer frekar en storage). Annars er hægt að nota hvaða poka sem er.
Þegar kemur að klakanum þá er gott að hafa vel frosna klaka og til að tryggj árangur er best að hafa nóg af honum. Eitt kíló ætti að duga í um fjóra skammta.
Saltið er betra gróft t.d. sjáfarsalt frá kötlu. Bæði er það ódýrara og auðveldara að finna í miklu magli en svo leysit það hægar upp og því gefur það betri raun í ísgerðinni.
Ísblandan sjálf er mjög einföld. Sú sem að ég geri oftast er svona:
Mjólk (má vera hvaða gerð sem er, líka soja eða hrís). Um 200-250 ml í hvern skammt.
Sykur 1-3 msk. Það fer eftir því hvaða bragðefni er verið að nota. Ég nota oftast 1 msk.
Einhvert bragðefni. Ég nota oftast íssósur t.d. súkkulaði eða jarðarberja. 2-4 msk eftir smekk.
Blandan fer í minnipokan. Lokað er fyrir og allt hrist vel saman.
Ísinn og saltið fer í stærri pokan um 5-6 stórar handfyllir af klaka og ein góð lúka af grófu salti. Litli pokinn fer svo ofaní þann stóra með klakanum og saltinu. Öllu lokað vel og svo er þetta hrist rólega (til að gata ekki innripokan) í um 10-15 mínútur.
Þegar klakinn fer að bráðna gerir hann það með svo miklum látum að hann dregur allan hita úr ísblöndunni, raunar svo mikið að hún frýs. Þannig er hægt að nota sér þau varmaskipti sem að eiga sér stað þegar ísinn breytist í vatn og nota til að búa til lítinn frysti. Þetta er reyndar ekki ný aðferð en það eru til gamlar handsnúnar ísvélar sem að nota sömu aðferð.
Ísblöndurnar geta svo verið eins fjölbreyttar og ímyndurnaraflið leyfir. Það er auðvelt að búa til klaka með ýmsum ávaxtasöfum eða með því að nota ýmiskonar fersk ber eða ávexti. Þegar það er gert þarf þó að nota mun meiri sykur. Það getur borgað sig að smakka blöduna til áður en hún er sett á ís.
Gangi ykkur svo vel.