maí14
Mig langar að þakka fyrir frábært námskeið í gær 13. maí. Við vorum ótrúlega heppin með veður, dagskráin gekk mjög vel upp og þátttakendur voru ótrúlega skemmtilegir.
Mér fannst sérstaklega gaman að fá á námskeiðið minn eigin heimilisfræðikennara hana Kristínu Stefánsdóttur. Það er eitthvað svo skemmtilegt að vera komin heilan hring í kennslunni. Reyndar fékk ég líka að kenna einum af leikskólakennurunum fyrir nokkru og það var sama tilfinning þá.
Ég lofaði að setja inn uppskriftir frá þessu námskeiði og þær koma í sér færslum.
Það er annað námskeið á morgun og enn nokkur pláss laus.
maí4
Þar sem skráning var ekki nægjanlega á námskeið á Akureyri þann 15. maí verður námskeiðið fært á Höfuðborgarsvæðið enda aðsókn þar betri en hægt var að vonast og nú þegar orðið fullt á námskeið þann 13.
Hægt er að skrá sig á námskeiði á forminu hér til hliðar.
Athygli er vakin á því að námskeiðið er FYRIR ALLA.
Námskeiðið er ekki bara fyrir kennara (þó að það nýtist þeim að sjálfsögðu vel í starfi) heldur er það opið öllum sem hafa áhuga á útieldun í öllum sínum myndum. Farið verður í sömu atriði og á námskeiðið þann 13.
Eldurinn, að kveikja eld og velja eldivið.
Prímusinn farið aðeins yfir mismunandi gerðir prímusa og notagildi þeirra.
Hollendingurinn (Dutch Oven) hvað er þetta og hvernig er hægt að nota þetta.
Eldaðir verða 5-6 réttir en námskeiðið tekur 3-4 tíma. Verð er eins og áður 5500 krónur.
apríl7
Nú er orðið fullt á námskeið á vegum Náttúruskóla Reykjavíkur sem haldið verður þann 14. apríl. Skráning er í fullum gangi á námskeið í maí og ágúst og um að gera að skrá fyrr en síðar.
feb.22
Við fengum frábært veður í dag á Hvanneyri þar sem 20 leikskólakennarar komu til að læra um útieldun og útikennslu. Það er ekki hægt að hugsa sér neitt betra að gera á degi eins og í dag en að kveikja eld og búa til nokkra góða rétti. Kennararnir (og tveir kennaranemar) voru frábærir, jákvæðir og skemmtilegir svo að ég naut þess að vera með þeim. Við tókum fyrir eldinn, að kveikja upp, hollendinginn og prímusinn.
Takk fyrir frábæran dag í meiriháttar félagsskap.
feb.17
Nú er daskráin að skýrast. Það er margt að gerast þessa dagana og t.d. er ég með tvö námskeið fyrir leikskóla og grunnskóla. Næsta mánudag verð á Hvanneyri þar sem leikskólinn Andabær hefur pantað einkakennslu og þann 9. mars mun ég kenna kennurum við Flataskóla í Garðabæ hvernig á að bera sig að við útieldunina.
Næstu opnu námskeið verða fimmtudaginn og laugardaginn 13. og 15. maí og ættu þá að nýtast vel fyrir þá sem að hafa áhuga á að kynna sér útikennslu og útieldun fyrir síðustu vikur skólans (nú eða almennt fyrir leikskóla enda eru þeir að allt sumarið). Þessi námskeið verða haldin bæði á höfuðborgarsvæðinu og fyrir norðan á stór Akureyrarsvæðinu. Unnið er að því að fá styrk fyrir þessum námskeiðum frá Endurmenntunnarsjóði en takist það mun þátttökugjaldið minka stórlega. Ég geri sömuleiðis ráð fyrir að halda námskeið í Ágúst til að undirbúa fólk fyrir komandi vetur og útikennsluna og útieldunina þar.
Að sjálfsögðu er alltaf hægt að hafa samband og panta námskeið fyrir skóla, leikskóla, frístundaheimili eða hvað sem er með því að senda tölvupóst á gummif (hjá) gmail.com eða hringja í síma 895 2409
Námskeið á næstunni:
22. febrúar - Leiskólinn Andabær á Hvanneyri, kennaranámskeið
9. mars - Flataskóli, kennaranámskeið
Apríl - námskeið í útieldun á vegum náttúruskóla RVK, á eftir að staðfesta dagsetningu
13. maí - 13:00 opið námskeið í útieldun og útikennslu á höfuðborgarsvæðinu , fyrir alla sem hafa áhuga. - Þetta er uppstigningardagur og lendir á fimmtudegi.
19. ágúst - 13:00 opið námskeið í útieldun og útikennslu á höfuðborgarsvæðinu, fyrir alla sem hafa áhuga.
21. ágúst - 13:00 opið námskeið í útieldun og útikennslu fyrir norðan - Akureyri - fyrir alla sem hafa áhuga.
nóv.25
Þetta bréf var ég að senda þátttakendum á námskeiði í útieldun og útikennslu sem að fram fer um helgina. Enn eru nokkur pláss laus á þessum námskeiðum svo að þeir sem eru áhugasamir geta enn sent mér póst og skráð þátttöku.
Sæll/sæl,
Þú ert skráður/skráð á námskeið í útieldun og útikennslu um helgina (28. eða 29. nóvember). Veðurspáin er mjög góð, engin úrkoma er í kortunum en það gæti orðið nokkuð kalt. Það ætti þó ekki að koma að sök enda verðum við með eldin til að orna okkur við og nóg af verkefnum til að vinna úr. Þó legg ég áherslu á að þú komir vel klædd/klæddur enda ekkert eins leiðinlegt og að verða kalt við vinnuna. Gott er að hafa góða fingravetlinga og að gleyma ekki húfunni og treflinum. Ef að þú ert með eitthvað fæðuóþol eða ofnæmi þá væri gott að vita af því fyrirfram svo að ég geti reynt að taka tillit til þess við innkaupin.
Námskeiðin fara öll fram við Laugarnesskóla í Reykjavík en kort af skólanum er hægt að sjá hér:
http://ja.is/kort/#q=laugarnessk%C3%B3li%20-%20laugarsel%20fr%C3%ADstundaheimili&x=359621&y=407845&z=9&type=aerial
Best er að leggja í bílastæði við Gullteig.
Hægt er að gera námskeiðið upp við komuna með peningum eða með því að leggja inn á reikning nr. 152-26-041015 kt. 170281-3659 og ekki er verra ef að bankinn sendir tölvupóst til staðfestingar á gummif@gmail.com. Það fá allir sem vilja kvittun fyrir gjaldinu og geta þá notað hana til að fá gjaldið endurgreitt frá skóla eða stéttarfélagi nú eða bara í heimilisbókhaldið.
Ef að það eru einhverjar spurningar þá endilega hafið samband annað hvort með því að senda póst til baka eða hringja í síma 895-2409.
nóv.12
Sráningin á námskeiðin í lok nóvember (28. og 29.) gengur vel en það eru enn laus nokkur pláss á öll námskeið. Námskeiðin eru ekki bara fyrir kennara því að starfsfólk frístundaheimila og félagsmiðstöðva er velkomið og að sjálfsögðu verður engum áhugasömum vísað frá.
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á gummif(hja)gmail.com og allar upplýsingar er að finna hér fyrir neðan eða í síma 8952409.
nóv.9
Því miður þá læddust inn dagsetningar frá því í október á plagatið. Þær eru hér með leiðréttar. Námskeiðin eru því helgina 28. og 29. nóvember.
Aðrar upplýsingar eru réttar en skráning er með tölvupósti á gummi(hjá)gmail.com
Hérna er rétt plagat.

Rétt plagat sem má prenta út og dreifa.
nóv.9
Nú er komið að þessu, námskeið fyrir höfuðborgarsvæðið og nærsveitir.
Hérna eru allar upplýsingar:

Þetta má prenta út og hengja upp
Það er takmarkaður fjöldi þátttakenda á hvert námskeið svo að ég hvet ykkur til að skrá ykkur snemma.
nóv.4
Nú fara næstu vikur að skýrast. Ég geri ráð fyrir því að vera með námskeið fyrir leik og grunnskólakennara í lok nóvember. Námskeiðið verður með svipuðu sniði og þau sem haldin voru fyrir norðan og áherslurnar svipaðar. Dagsetningin eins og er er 28. og 29. nóvember.
Boðið verður upp á tvö námskeið hvorn dag ef að skráning er nægilega góð.
Hægt er að skrá sig strax en frekari upplýsingar koma síðar. Skráning fer fram á gummif(hja)gmail.com