Tag spritt

Spritt prímus 0

ág.25

Eins og nafnið gefur til kynna þá nota þessi eldunartæki oftast brennsluspritt eða rauðspritt. Þetta eru mjög einföld tæki sem byggja á því að eldfimum vökva er hellt í þar til gert brennsluhólf og svo er kveikt í honum með eldspýtu eða eldfærum. Vökvinn brennur svo við stöðugan hita (hámarkshita) þar til hann er uppurinn eða slökt er í honum með því að kæfa logan.

Þessi tæki hafa marga kosti en um leið marga galla.

Kostir

  • Prímusinn er einfaldur í notkun.
  • Eldsneytið er ódýrt og aðgengilegt (það má fá í apótekum, bensínstöðvum og byggingarvöruverslunu)
  • Þar sem engir hreyfanlegir hlutir eru í tækinu bilar það ekki.
  • Eldsneytið brennur þó að kalt sé úti.
  • Loginn er oftast hreinn og stöðugur
  • Þeir eru léttir

Gallar

  • Loginn er opin og óvarinn
  • Eldsneytið er í opnu brunahólfi. Verði það fyrir hnjaski getur kviknað í.
  • Ekki er hægt að stjórna hitanum nema afar takmarkað.
  • Ekki er hægt að bæta eldsneyti á fyrr en slökknað hefur í því sem fyrir er.
  • Loginn er viðkvæmur fyrir vatni og vindum

Spritt-primusinn hefur verið notaður í næstum hundrað ár í þeirri mynd sem þekkist í dag. Þekktast fyrirtækið Trangia seldi fyrsta primusinn 1925 og síðan þá hefur hann bæði þróast og staðið í stað. Sjálft brennsluhólfið hefur lítið breyst enda prinsipið það sama og í upphafi en umgjörð þess hefur tekið stakkaskiptum. Primusinn hefur þannig orðið öruggari og einfaldari í notkun og um leið getað boðið upp á fleyri möguleika s.s. að stjórna hitanum (lítillega).

Sem kennslutæki er sprittprimusinn áræðanlegur og einfaldur. Það þarf þó að fylgja nokkrum öruyggisreglum eins og alltaf þegar um opin elda er að ræða.

Kynnið primusinn vel fyrir nemendum. Hvernig hann virkar og hvernig á að slökkva í honum.

  • Gætið þess vel að velja stöðugt og slétt undirlag.
  • Setjið ekki meira eldsneyti en þarf í brunahólfið og fyllið aldrei á það meðan kveikt er.
  • Nemendur ættu aldrei að fylla á brunahólfið (hvorki í upphafi né á meðan á notkun stendur)
  • Farið mjög varlega með hitastillir í loki (enfaldur flipi til að opna eða loka fyrir brennsluhólfið) því að hann hitnar mjög mikil.
  • Látið nemendur ekki slökkva sjálfa á prímusnum heldur aðstoðið þá við það.
  • NOTIÐ ALDREI VATN TIL AÐ SLÖKKVA Á PRÍMUSNUM!!!!

Sé þessum reglum fylgt og almennri skynsemi beitt þá ætti að vera lítið mál að læra á og nota sprittprimusinn í kennslu. Þess þarf þó að gæta að það er erfitt að stilla hita á sprittprimus. Nýjustu útgáfur bjóða upp á lítin flipa sem hægt er að nota til að stækka og minka opið á brennsluhólfinu en það getur verið erfitt að stilla það því að flipinn hitnar mjög mikið. Það getur því þurft að velja einfaldar uppskriftir til að kenna sérstakelga til að byrja með. Súpur eða matur sem er eldaður með suðu er tilvalinn auk þess sem auðvelt getur verið að elda suma pönnurétti (sérstakelga í góðu veðri þar sem pannan situr mjög hátt).

Nýr prímus frá Trangia kemur með sérstakri vindhlíf sem smellt er saman og brennsluhólfið sett í miðjuna. Prímusinn verður því mjög stöðugur og þægilegur í hvernig veðri sem er. Kynnið ykkur og nemendum ykkar leiðbeiningar sem fylgja mjög.

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com