nóv.25
Þetta bréf var ég að senda þátttakendum á námskeiði í útieldun og útikennslu sem að fram fer um helgina. Enn eru nokkur pláss laus á þessum námskeiðum svo að þeir sem eru áhugasamir geta enn sent mér póst og skráð þátttöku.
Sæll/sæl,
Þú ert skráður/skráð á námskeið í útieldun og útikennslu um helgina (28. eða 29. nóvember). Veðurspáin er mjög góð, engin úrkoma er í kortunum en það gæti orðið nokkuð kalt. Það ætti þó ekki að koma að sök enda verðum við með eldin til að orna okkur við og nóg af verkefnum til að vinna úr. Þó legg ég áherslu á að þú komir vel klædd/klæddur enda ekkert eins leiðinlegt og að verða kalt við vinnuna. Gott er að hafa góða fingravetlinga og að gleyma ekki húfunni og treflinum. Ef að þú ert með eitthvað fæðuóþol eða ofnæmi þá væri gott að vita af því fyrirfram svo að ég geti reynt að taka tillit til þess við innkaupin.
Námskeiðin fara öll fram við Laugarnesskóla í Reykjavík en kort af skólanum er hægt að sjá hér:
http://ja.is/kort/#q=laugarnessk%C3%B3li%20-%20laugarsel%20fr%C3%ADstundaheimili&x=359621&y=407845&z=9&type=aerial
Best er að leggja í bílastæði við Gullteig.
Hægt er að gera námskeiðið upp við komuna með peningum eða með því að leggja inn á reikning nr. 152-26-041015 kt. 170281-3659 og ekki er verra ef að bankinn sendir tölvupóst til staðfestingar á gummif@gmail.com. Það fá allir sem vilja kvittun fyrir gjaldinu og geta þá notað hana til að fá gjaldið endurgreitt frá skóla eða stéttarfélagi nú eða bara í heimilisbókhaldið.
Ef að það eru einhverjar spurningar þá endilega hafið samband annað hvort með því að senda póst til baka eða hringja í síma 895-2409.
nóv.9
Því miður þá læddust inn dagsetningar frá því í október á plagatið. Þær eru hér með leiðréttar. Námskeiðin eru því helgina 28. og 29. nóvember.
Aðrar upplýsingar eru réttar en skráning er með tölvupósti á gummi(hjá)gmail.com
Hérna er rétt plagat.

Rétt plagat sem má prenta út og dreifa.
nóv.4
Nú fara næstu vikur að skýrast. Ég geri ráð fyrir því að vera með námskeið fyrir leik og grunnskólakennara í lok nóvember. Námskeiðið verður með svipuðu sniði og þau sem haldin voru fyrir norðan og áherslurnar svipaðar. Dagsetningin eins og er er 28. og 29. nóvember.
Boðið verður upp á tvö námskeið hvorn dag ef að skráning er nægilega góð.
Hægt er að skrá sig strax en frekari upplýsingar koma síðar. Skráning fer fram á gummif(hja)gmail.com
sept.29
Nú eru aðeins nokkrir dagar í námskeið í Eyjafirði. Ég vil því hvetja þá sem hafa áhuga á þessu að hafa samband í síma 8952409 eða með tölvupósti á gummif(hjá)gmail.com
Skráningarfrestur er til 1. október og ég sendi svo þeim sem hafa skráð sig tölvupóst með frekari upplýsingum.
ág.25
Campers´s guide to outdoor cooking

John G. Ragsdale
Fæst hjá Amazon.com
Kiljubrot 175 blaðsíður
Svarthvítar ljósmyndir til skýringar
Auðveldur og aðgengilegur texti
“Fyrstu 75 blaðsíðurnar fjalla um tók tæki og aðferðir, hér er því verið að fá mikið fyrir peninginn.”
John G. Ragsdale hefur um árabil verið sjálfboðaliði hjá skátahreyfingunni. Eins og með marga aðra áhugamenn um útieldun hefur það starf veitt honum gríðarlega reynslu. Sú reinnsla kemur líka vel fram í þessari bók enda er hún líklega skrifuð með skáta og skátaforingja í huga. Þetta kemur sér vel fyrir okkur enda er bókin bæði auðlesin og aðgengileg. Hún tekur á öllu er varðar útieldun, frá tækjum og tólum til uppskrifta. Myndirnar í bókinni eru góðar og sýna fjölmörg tæki, þar á meðal mörg sem við höfum ekki séð hingað til á Íslandi. Hugmydirnar í bókinn eru góðar og uppskriftirnar, sem er yfir 200, eru einfaldar og fjölbreittar.
Það er auðvelt að mæla með þessari bók, sérstaklega fyrir byrjendur. Hana má skoða á Amazin.com með því að smella hér.
ág.25
Bensín-prímusar er samheiti yfir margar gerðir prímusa sem nota kolefniseldsneyti s.s. bensín, steinolíu, flugvélabensín, hreinsað bensín eða eitthvað annað í ætt við það. Þessum prímusum má skipta í tvo flokka. Svokallaðar alætur sem brenna mörgum gerðum eldsneytis (það eru jafnvel til prímusar af þessari gerð sem brenna líka gasi) og svo prímusar sem eru hannaðir fyrir eina gerð af eldsneyti. Í seinni tíð hefur hreinsað bensín orðið vinsælasti eldsneytisgjafinn þrátt fyrir að vera mjög dýrt en alæturnar eru líka að verða mun vinsælli. Þær eru samt yfirleitt með dýrari gerðum af prímusum.
Langflestir þessara prímusa eiga það sameiginlegt að þá þarf að hita fyrir notkun. Þeir virka þannig að eldsneytinu er veitt í gegnum pípu sem liggur við eða nálægt brennsluhausnum. Þegar pípan hefur hitnað og prímusinn er í gangi hitar hann eldsneytið áður en það kemst alla leið og breytir því þannig í gufu. Það brennur því af meiri krafti, með meiri hita og mun hreinna þegar það kemur í brennsluhausinn.
Einn af kostum þessara prímusa er að eldsneytishólfið er yfirleitt í sér flösku. Það er þá hægt að taka það frá prímusnum eftir notkun. Þá er eldsneytið ekki geymt undir þrýstingi líkt og þegar um gas er að ræða sem gerir alla meðhöndlun mun öruggari. Þetta krefst þess þó að notandinn setji þrýsing á flöskuna með þar til gerðri pumpu áður en hægt er að nota prímusinn. Þrýstingurinn er hækkaður með því að pumpa lofti í flöskuana sem þrýsir eldsneytinu út um ventilinn og í prímusinn.
Nýjar gerðir af þessum prímusum eru orðnar mjög áræðanlegar. Hægt er að stýra hitanum með því að opna eða loka fyrir flæði eldsneytisins en það verður þó að pumpa reglulega til að halda uppi þrýsingnum.
Þessir prímusar hafa marga kosti en nokkra galla.
Kostir
- Eldsneytið er auðfengið
- Prímusinn er áræðanlegur (sérstaklega ef notað er hreinsað bensín).
- Kuldi hefur lítil áhrif á hita eða virkni
- Þá má taka í sundur og geyma í sitthvoru lagi
- Auðvelt er að geyma eldsneytið og það er frekar öruggt
Gallar
- Þeir eru flóknir með mörgum hreifanlegum hlutum
- Þeir eru dýrir
- Eldsneyti (sérstaklega hreinsað bensín) er oft dýrt.
- Þeir sóta ef notað er óhreint eldsneyti
- Þá þarf að hita fyrst
- Þá þarf að pumpa reglulega
- Þeir eru oft háværir
Þó að bensín-prímusar virðist frekar flókin tæki þá er yfirleitt auðvelt að læra á þá og tileinka sér virkni þeirra. Þega kemur að eldunareiginleikum þeirra þá eru fáir prímusar sem standa þeim jafnfætis. Bensín-prímusar gefa yfirleitt frá sér mun meiri hita en sambærilegir primusar auk þess sem þeir þola veður og vind mun betur en t.d. gas- prímusar. Þeir eiga það þó til að vera háværir auk þess sem þeir eru líklega aðeins of flóknir til að vera góð kennslutæki. Sé hins vegar markmiðið að fara í langar ferðir með nemendum þá getur verið kostur að taka með sér bensín-prímus enda taka þeir yfirleitt minna pláss heldur en sambærilegt magn af gasi.
Þegar prímusarnir og eldsneyti þeirra er haft um hönd eru nokkrar reglur sem gott er að fara eftir.
- Munið að bensín er eldfimt og spilliefni. Farið því mjög varlega þegar skipt er um brúsa, þeir fylltir eða pumpu komið fyrir.
- Mjög lítið magn af bensíni eða olíu þarf til að spilla mat og vatni. Það verður því að halda þessum hlutum vel aðskildum.
- Gætið þess að kynna ykkur leiðbeiningar mjög vel. Suma bensín-prímusa þarf að hita fyrir notkun.
- Farið varlega með opin eld. Passið að prímusinn sé stöðugur og bensínflaska ekki of nálægt.
- NOTIÐ ALDREI VATN TIL AÐ SLÖKKVA Á PRÍMUSNUM.
- Eldið ekki inni með bensín- prímus. Myndast geta hættulega gufur og við hitun er oft stór logi sem skemmt getur tjöld eða föt.
ág.25
Eins og nafnið gefur til kynna þá nota þessi eldunartæki oftast brennsluspritt eða rauðspritt. Þetta eru mjög einföld tæki sem byggja á því að eldfimum vökva er hellt í þar til gert brennsluhólf og svo er kveikt í honum með eldspýtu eða eldfærum. Vökvinn brennur svo við stöðugan hita (hámarkshita) þar til hann er uppurinn eða slökt er í honum með því að kæfa logan.
Þessi tæki hafa marga kosti en um leið marga galla.
Kostir
- Prímusinn er einfaldur í notkun.
- Eldsneytið er ódýrt og aðgengilegt (það má fá í apótekum, bensínstöðvum og byggingarvöruverslunu)
- Þar sem engir hreyfanlegir hlutir eru í tækinu bilar það ekki.
- Eldsneytið brennur þó að kalt sé úti.
- Loginn er oftast hreinn og stöðugur
- Þeir eru léttir
Gallar
- Loginn er opin og óvarinn
- Eldsneytið er í opnu brunahólfi. Verði það fyrir hnjaski getur kviknað í.
- Ekki er hægt að stjórna hitanum nema afar takmarkað.
- Ekki er hægt að bæta eldsneyti á fyrr en slökknað hefur í því sem fyrir er.
- Loginn er viðkvæmur fyrir vatni og vindum
Spritt-primusinn hefur verið notaður í næstum hundrað ár í þeirri mynd sem þekkist í dag. Þekktast fyrirtækið Trangia seldi fyrsta primusinn 1925 og síðan þá hefur hann bæði þróast og staðið í stað. Sjálft brennsluhólfið hefur lítið breyst enda prinsipið það sama og í upphafi en umgjörð þess hefur tekið stakkaskiptum. Primusinn hefur þannig orðið öruggari og einfaldari í notkun og um leið getað boðið upp á fleyri möguleika s.s. að stjórna hitanum (lítillega).
Sem kennslutæki er sprittprimusinn áræðanlegur og einfaldur. Það þarf þó að fylgja nokkrum öruyggisreglum eins og alltaf þegar um opin elda er að ræða.
Kynnið primusinn vel fyrir nemendum. Hvernig hann virkar og hvernig á að slökkva í honum.
- Gætið þess vel að velja stöðugt og slétt undirlag.
- Setjið ekki meira eldsneyti en þarf í brunahólfið og fyllið aldrei á það meðan kveikt er.
- Nemendur ættu aldrei að fylla á brunahólfið (hvorki í upphafi né á meðan á notkun stendur)
- Farið mjög varlega með hitastillir í loki (enfaldur flipi til að opna eða loka fyrir brennsluhólfið) því að hann hitnar mjög mikil.
- Látið nemendur ekki slökkva sjálfa á prímusnum heldur aðstoðið þá við það.
- NOTIÐ ALDREI VATN TIL AÐ SLÖKKVA Á PRÍMUSNUM!!!!
Sé þessum reglum fylgt og almennri skynsemi beitt þá ætti að vera lítið mál að læra á og nota sprittprimusinn í kennslu. Þess þarf þó að gæta að það er erfitt að stilla hita á sprittprimus. Nýjustu útgáfur bjóða upp á lítin flipa sem hægt er að nota til að stækka og minka opið á brennsluhólfinu en það getur verið erfitt að stilla það því að flipinn hitnar mjög mikið. Það getur því þurft að velja einfaldar uppskriftir til að kenna sérstakelga til að byrja með. Súpur eða matur sem er eldaður með suðu er tilvalinn auk þess sem auðvelt getur verið að elda suma pönnurétti (sérstakelga í góðu veðri þar sem pannan situr mjög hátt).
Nýr prímus frá Trangia kemur með sérstakri vindhlíf sem smellt er saman og brennsluhólfið sett í miðjuna. Prímusinn verður því mjög stöðugur og þægilegur í hvernig veðri sem er. Kynnið ykkur og nemendum ykkar leiðbeiningar sem fylgja mjög.
ág.25
Þetta eru primusar sem nota gas í einhverju formi sem eldsneyti. Þessi tæki eru íslendingum ekki ókunn enda höfum við notað þau um árabil bæði á heimilum og í ferðalögum. Oftast nota gas-primusar própangas, bútangas eða blöndu þessara beggja.
Fjölmargar útgáfur af gasprímusum hafa veið notaðar hér á landi með góðum árangir. Það er þó ekki langt síðan einnota kútar fóru að mestu af markaðnum og í staðin komu kútar sem hægt er að skrúfa af og á eftir þörfum. Hægt er að fá þessa kúta í mismunandi stærðum og frá fjölmörgum framleiðendum en þeir hafa flestir sama skrúfganginn og nýtast því á flesta gas-prímusa sem útbúnir eru með skrúfgangi.
Gas-prímusar eru mjög einföld tæki. Þar sem gasið er ekki fljótandi nema undir þrýstingi þá þarf ekki sérstakan búnað til að það brenni vel. Því er einfaldlega hleypt út úr kútunum og inn í brunahaus prímusins sem er alsettur litlum götum. Á leiðinni fer það úr fljótandi fasa yfir í loftfasa og þegar það kemur út úr brunahausnum er hægt að kveikja í því. Magni gassins sem kemur úr kútnum og þar með hitanum er hægt að stjórna með einfaldri loku.
Gas-prímusar hafa því marga kosti en nokkra galla.
Kostir
- Einfaldir í notkun
- Auðvelt að nálgast eldsneyti
- Auðvelt að stjórna hita
- Auðvelt að kveikja og skökkva
- Oftast litlir og léttir
Gallar
- Eldsneyti frekar dýrt
- Geta verið óstöðugir
- Þola illa vind og veður
- Geta virkað illa í kulda
Gas-primusar sem fást á íslandi eru yfirleit góð vara. Sé verið að huga að kennslu gæti verið gott að velja örlítið dýrari prímus þar sem þeir eru yfirleitt betri og endingarmeiri. Þá gæti verið gott að velja prímus sem tengist gaskútnum með slöngu en skrúfast ekki beint ofaná hann. Þett býður upp á mun meiri stöðugleika auk þess sem pottar og pönnur eru nær jörðinni og því minni hætta á slysum ef þeirr detta eða færast. Dreifing logans og stærð brunahaussins skiptir miklu máli þegar kemur að eldunareiginleikunum. Reynið að velja prímus sem hefur stóran brunahaus þar sem hann þolir meiri vind hitar hraðar. Þá getur verið gott að búa til skjól fyrir prímusinn til að verja hann fyrir vindi.
Þar sem frostmark gas er mjög lágt (um -1°C) þá virka þeir ekki mjög vel í kulda. Við lágt hitastig eða um 5°C fer gasið að renna mun hægar. Þetta getur valdið litlum loga eða flökti í loganum sem hægir á allri eldun. Sé ætlunin að elda mikið í kulda eða um vetur getur því verið ráð að nota aðrar gerðir af prímusum heldur en gas.
Nokkrar reglur er gott að hafa í huga þegar notaður er gasprímus.
§ Notið aðeins nýja gaskúta sem eru óbeyglaðir og óryðgaðir.
§ Gætið þess að prímusinn sé stöðugur og láréttur til að hann detti ekki eða pottar detti ekki af honum.
§ Skrúfið ekki meira frá prímusnum heldur en nauðsynlegt er.
§ Gætið þess að slökkva alltaf á honum, líka þegar loginn hefur blásið af. Gas hefur einkennandi lykt en það getu verið hættulegt við innöndun.
§ Farið varlega með prímusa sem verið er að nota því þeir hitna mjög mikið. Leyfið þeim alltaf að kólna áður en þeir eru handfjatlaðir.
ág.25
Þá er vinnu sumarsins lokið. Völundur Jónsson og Sævar Öfjörð hafa lokið við að endurnýja heimasíðuna og er hér með þakkað vel fyrir. Ég er að verða búin að vinna ný fræðslumyndbönd fyrir vefinn. Þau fjalla um úteldun og ýmislegt tengt því. Markmiðið er að vinna fleiri myndbönd eftir því sem efni og aðstæður leyfa.
Annars verður vefurinn helgaður útieldun bæði í kennslu og leik. Hér er einnig markmiðið að byrta ýmiskonar fróðleik um matargerðarmálefni.
Vonandi njótið þið sem best.
GF