Tag uppskrift

Pizzasósa - einföld og ótrúlega góð 0

maí26

Þetta er einföld sósa og flest það sem fer í hana er til inni í skáp og í ísskápnum.

1 laukur - miðlungsstór. Smátt saxaður.
2 gulrætur - smátt saxaðar
1 Sellerístilkur smátt saxaður - má sleppa.
2 hvítlaukslauf - smátt söxuð
4 matskeiðar ólífuolía - til að steikja í (ekki nota Extra Virgin)
2 dósir niðursoðnir tómatar (gott að nota saxaða eða saxa þá sjálfur)
1 dós tómatpúrra (þessa pínulitlu) tómatpúrra kemur í mörgum þykktum, en það fer eftir vatnsinnihaldi hversu þykk hún er. Því þykkar því meira bragð (eða þeim mun minna þarf að nota til að fá meira bragð) svo að það er gott að reyna að finna þykkari gerðina. Ef það er ekki hægt þá má nota þynnri púrru en þá verður sósan þynnri og það þarf að sjóða hana lengur á vægum hita til að þykkja hana.
1 msk basilika (þurrkuð)
1 msk oreganó (þurrkað)
1 tsk paprikuduft
Salt og pipar eftir smekk

Svo er bara að saxa og sjóða. Best er að setja þetta í þykkbotnapott í þeirri röð sem það er í listanum. Svitaður laukinn, hvítlaukinn, gulrótina og selleríið saman áður en öllu hinu er bætt út í. Að svita er að steikja á vægum hita þar til laukurinn verður glær.

Láttu þetta svo sjóða á vægum hita í eins langan tíma og hægt er - sósan batnar bara við það.

Sósuna má kæla og geyma í nokkra daga í ísskáp. Hún er frábær á pizzur og á pasta. Það má líka frysta hana og geyma í nokkra mánuði þannig.

Tómatbrauð frá 13. maí 0

maí14

Hérna kemur brauðuppskriftin sem að við notuðum þann 13. maí. Þessi uppskrift er ótrúlega einföld og það má auðveldlega breyta henni í eitthvað annað.

Hráefni:

6 dl volgt vatn
1 msk hunang
1 msk ger
2-3 msk tómatpúrra (það má líka nota pizzasósu)
um 1 kg hveiti (u.þ.b. 14 dl)
1 tsk salt
2 msk olía (ólífu er bragbetri)

Aðferð:

Ég geri þetta gjarnan í matvinnsluvélinni en það má vel gera þetta í höndum eða hrærivél með deigkrók.

Vatni, geri, hunangi og púrru blandað saman. hveitinu bætt út í ásamt salti og olíu. Þetta er hrært eða hnoðað vel saman. Það er mikilvægt að hnota þetta rækilega ef það er gert í höndum má gera ráð fyrir um 10 mínútum um 5 í vélinni.

Deigið er látið hefast í um klukkustund og slegið niður og hnoðað aftur í smá stund. Látið hefast aftur og slegið aftur niður. Þá er það tilbúið að fara í pottinn (við notuðum Dutch Oven eða Hollending). Annars á plötu þar sem það færi að hefast í 30 mínútur. Svo er þetta sett yfir hitan og bakað í 30 til 40 mínútur. Ef að þetta fer inn í ofn myndi ég stilla hitan á 180 til 190°C og ef til vill baka þetta aðeins í 30 mínútur. Þetta er samt frekar stórt brauð og því er betra að nota augað til að meta tíman.

Þessu brauði má svo breyta í hvað sem er, skipta út púrrunni fyrir pizzakrydd eða setja kúmen, jafnvel nota einhverjar sósur eins og pestó. Grunnurinn er alltaf sá sami. Að sjálfsögðu má líka breyta þessu í heilhveitibrauð og skipa út hluta af hveitinu fyrir heilhveiti.

Ís í poka 0

sept.20

Það er auðvelt að búa til heimatilbúinn ís án þess að nota frysti. Þetta má gera með því að blanda saman

klaka og salti.

Einfaldasta ílátið sem hægt er að finna er plastpoki. Gott er að nota Zip-lock poka því að það er auðvelt að vinna með þá. Auðvitað má vel nota önnur ílát en þá er gott að reyna að finna t.d. ílát úr málmi s.s. áli því að þau leiða kuldan vel.

Þegar ílátin hafa verið fundin er komið að næsta skrefi.

Búið til einfalda ísblöndu t.d. með þessum uppskriftum

Vanilluís

2 dl rjómi

2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)

1 egg (hrært sundur með gaffli)

1 dl sykur

1 tsk vanilludropar

Súkkulaðiís

2 dl rjómi

2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)

1 dl sykur

4 msk kakóduft

1 tsk vanilludropar

1/8 tsk salt

Kaffiís

2 dl rjómi

2 dl matreiðslurjómi (eða mjólk)

1 dl sykur

2 msk kaffiduft (nescafé)

1 tsk vanilludropar

1/8 tsk salt

Einfaldasta uppskriftin er þó líklega þessi:

2,5 dl mjólk

1 msk sykur

og skvetta af hvaða íssósu sem er (þó ekki ísingu því að hún harðnar í kulda)

Þegar blandan er tilbúin er hún sett í minna ílátið og því lokað vel. Það er svo sett í það stærra en allt um kring er sett blanda af klaka og salti. Best er að nota mjög gróft salt og grófmulinn klaka. Blandan á að vera 1 hluti salt á móti 5 hlutum af klaka. Ílátinu er lokað og það er hrist rólega í 15 til 20 mínútur eða þar til ísinn er frosinn. Klakinn bráðnar og því getur sullast vatn úr ílátinu. Það má hella þessu vatni út og bæta í meiri klaka og salt blöndu ef að ísinn er ekki nægilega frosinn.

Hvernig virkar þetta svo?

Ef að allt væri gert með sama hætti þá mundi klakinn bráðna við 0°C. Þó að þetta hitastig sé við frostmark er það ekki nóg til að frysta ísinn. Þegar salt er sett saman við þá bráðnar klakinn hins vegar mun hraðar. Þessi hröðu varmaskipti verða til þess að hitastigið í ílátinu fellur niður fyrir -2.7°C sem er það hitastig sem ísinn þarf til að frjósa. Með salt og klaka blöndu 1:5 þá er hægt að ná hitanum niður í -11 til -13°C.

Allar lausnir leitast við að ná varmajafnvægi. Þegar klakinn bráðnar í ílátinu okkar er hann í raun að hitna.

Til þess þarf hann að nota hitan úr ísblöndunni. Með því að hraða þessu ferli og auka kælingu klakans þá dregur hann hitan úr íslblöndunni svo hratt að hún nær að frjósa.

Útieldhúsið frá KHÍ 0

sept.20

Hérna er slóðin á lokaverkefnið mitt frá því í kennó. Ég hef aldrei gefið út verkefnið (nema fyrir kennó á sínum tíma) þar sem mér fannst það ekki komið í úgáfuhæft ástand en fólki er frjálst að skoða það og nýta sér þær hugmyndir sem þar koma fram í leik eða starfi. Svo er aldrei að vita nema þetta komist í útgáfu síðar.

Forsíða verkefnisins myndin er tekin af Völundi Jónssyni ljósmyndara

Forsíða verkefnisins myndin er tekin af Völundi Jónssyni ljósmyndara

http://www.skemman.is/handle/1946/394

Heitt kakó 0

ág.25

Eitt það auðveldasta sem hægt er að gera á prímus er heitt kakó. Ekki aðeins er það auðvelt heldur líka gott og fljótlegt. Þetta er tilvalið byrjendaverkefni fyrir krakka eða fyrir óvana og það verkefni sem ég byrja alltaf á með mínum nemendum.

Heitt kakó

1 msk kakóduft
2 msk sykur
1 dl vatn
1/2 l mjólk
2-3 sykurpúðar

Byrjið á því að hita saman kakó, sykur og vatn. Hrærið vel í þar til blandan er rjúkandi og kekkjalaus. Blandið þá mjólkinni saman við og hitið en sjóðið ekki.

Þegar kakóið er orðið vel heitt er því hellt yfir sykurpúðana í glasið hjá hverjum og einum (2-3 sykurpúðar í hvert glas). Sykurpúðarnir brjáðna aðeins í glasinu og búa til sæta og góða froðu yfir kakóið. Ef það er of heitt er nóg að bíða smá stund en að sjálfsögðu má setja smá mjólk út í.

Verði ykkur að góðu.

Það er gott að nota tækifærið og fylgjast með því hversu lengi prímusinn er að hita þetta magn af vatni. Ef notaður er sprittprímus er einnig gott að sjá hversu mikið spritt þarf til að hita kakóið. Það er svo hægt að nota til viðmiðunar þegar farið er í önnur verkefni.

Ís í poka 0

ág.25

Það er fátt eins flott og að fá sér ís þar sem það á ekki að vera hægt. Það er auðvelt að búa til ís við allar aðstæður ef að maður hefur nokkur lykil hráefni við hendina. Ég hef bæði notað þess aðferð í skólanum (þar sem þetta er alltaf jafn vinsælt), í skátastarfinu og við ýmis önnur tækifæri.

Aðferðin:
Hún er einföld, það sem þarf að hafa við hendina eru plastpokar, klaki, salt, og ísblandan (hún getur verið heimatilbúin, aðkeypt, einföld eða flókin).
Mér finnst best að nota Zip-lock poka af mismunandi stærð. Þá finnst mér betra að hafa þá úr þykkara plastinu (freezer frekar en storage). Annars er hægt að nota hvaða poka sem er.
Þegar kemur að klakanum þá er gott að hafa vel frosna klaka og til að tryggj árangur er best að hafa nóg af honum. Eitt kíló ætti að duga í um fjóra skammta.
Saltið er betra gróft t.d. sjáfarsalt frá kötlu. Bæði er það ódýrara og auðveldara að finna í miklu magli en svo leysit það hægar upp og því gefur það betri raun í ísgerðinni.

Ísblandan sjálf er mjög einföld. Sú sem að ég geri oftast er svona:

Mjólk (má vera hvaða gerð sem er, líka soja eða hrís). Um 200-250 ml í hvern skammt.
Sykur 1-3 msk. Það fer eftir því hvaða bragðefni er verið að nota. Ég nota oftast 1 msk.
Einhvert bragðefni. Ég nota oftast íssósur t.d. súkkulaði eða jarðarberja. 2-4 msk eftir smekk.

Blandan fer í minnipokan. Lokað er fyrir og allt hrist vel saman.

Ísinn og saltið fer í stærri pokan um 5-6 stórar handfyllir af klaka og ein góð lúka af grófu salti. Litli pokinn fer svo ofaní þann stóra með klakanum og saltinu. Öllu lokað vel og svo er þetta hrist rólega (til að gata ekki innripokan) í um 10-15 mínútur.

Þegar klakinn fer að bráðna gerir hann það með svo miklum látum að hann dregur allan hita úr ísblöndunni, raunar svo mikið að hún frýs. Þannig er hægt að nota sér þau varmaskipti sem að eiga sér stað þegar ísinn breytist í vatn og nota til að búa til lítinn frysti. Þetta er reyndar ekki ný aðferð en það eru til gamlar handsnúnar ísvélar sem að nota sömu aðferð.

Ísblöndurnar geta svo verið eins fjölbreyttar og ímyndurnaraflið leyfir. Það er auðvelt að búa til klaka með ýmsum ávaxtasöfum eða með því að nota ýmiskonar fersk ber eða ávexti. Þegar það er gert þarf þó að nota mun meiri sykur. Það getur borgað sig að smakka blöduna til áður en hún er sett á ís.

Gangi ykkur svo vel.

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com