Frábært námskeið þann 13. maí 1
Mig langar að þakka fyrir frábært námskeið í gær 13. maí. Við vorum ótrúlega heppin með veður, dagskráin gekk mjög vel upp og þátttakendur voru ótrúlega skemmtilegir.
Mér fannst sérstaklega gaman að fá á námskeiðið minn eigin heimilisfræðikennara hana Kristínu Stefánsdóttur. Það er eitthvað svo skemmtilegt að vera komin heilan hring í kennslunni. Reyndar fékk ég líka að kenna einum af leikskólakennurunum fyrir nokkru og það var sama tilfinning þá.
Ég lofaði að setja inn uppskriftir frá þessu námskeiði og þær koma í sér færslum.
Það er annað námskeið á morgun og enn nokkur pláss laus.
Takk fyrir skemmtilegt námskeið! Við eigum mikið af myndum og setjum væntanlega eitthvað inn á heimasíðuna okkar, http://www.alfaheidi.is en svo ertu velkominn til okkar ef þú vilt fá myndir á diski. Það var sérstaklega áhugavert fyrir okkur að læra um byggingu á svona eldstæði og þetta getum við klárlega nýtt okkur!
Bestu kveðjur úr leikskólanum Álfaheiði