recently featured posts we've got 53 articles so far

Námskeið í maí og ágúst 0

apríl28

Nú er skráning í fullum gangi (smellið hérna til hægri og fyllið út formið) fyrir næstu námskeið. Námskeiðin eru opin öllum en það er takmarkaður fjöldi á hvert námskeið (svona til að allir fái eitthvað út úr þessu).
Verðið er 5500 á mann en innifalið í því eru allar veitingarnar á námskeiðinu, leiðsögnin og lán á öllum búnaði. Þátttakendur þurfa bara að koma með sjálfan sig og klæða sig eftir veðri.
Námskeiðin eru 3 og hálfur til 4 tímar að lengd svo að það má gera ráð fyrir að við séum að klára á milli 16:30 og 17.

Eldað verður á eldi, prímus og í Hollending (dutch oven) og búnir til 5 eða 6 réttir. Það fer engin svangur heim og allir með fullt af hugmyndum í farteskinu.

Enn er unnið að því að fá styrk fyrir kennara á námskeið í ágúst úr endurmenntunnarsjóði en það er enn ekki komið í ljós hvort af því verður. Annars geta þeir sem vilja alltaf sótt um endurgreiðslu á námskeiðsgjaldinu til stéttarfélags.

Hlakka til að sjá sem flesta…

Fullt á námskeið í apríl 0

apríl7

Nú er orðið fullt á námskeið á vegum Náttúruskóla Reykjavíkur sem haldið verður þann 14. apríl. Skráning er í fullum gangi á námskeið í maí og ágúst og um að gera að skrá fyrr en síðar.

Námskeið í Andabæ 2

feb.22

Við fengum frábært veður í dag á Hvanneyri þar sem 20 leikskólakennarar komu til að læra um útieldun og útikennslu. Það er ekki hægt að hugsa sér neitt betra að gera á degi eins og í dag en að kveikja eld og búa til nokkra góða rétti. Kennararnir (og tveir kennaranemar) voru frábærir, jákvæðir og skemmtilegir svo að ég naut þess að vera með þeim. Við tókum fyrir eldinn, að kveikja upp, hollendinginn og prímusinn.

Takk fyrir frábæran dag í meiriháttar félagsskap.

Næstu námskeið í útieldun 0

feb.17

090822_v_mg_4490Nú er daskráin að skýrast. Það er margt að gerast þessa dagana og t.d. er ég með tvö námskeið fyrir leikskóla og grunnskóla. Næsta mánudag verð á Hvanneyri þar sem leikskólinn Andabær hefur pantað einkakennslu og þann 9. mars mun ég kenna kennurum við Flataskóla í Garðabæ hvernig á að bera sig að við útieldunina.

Næstu opnu námskeið verða fimmtudaginn og laugardaginn 13. og 15. maí og ættu þá að nýtast vel fyrir þá sem að hafa áhuga á að kynna sér útikennslu og útieldun fyrir síðustu vikur skólans (nú eða almennt fyrir leikskóla enda eru þeir að allt sumarið). Þessi námskeið verða haldin bæði á höfuðborgarsvæðinu og fyrir norðan á stór Akureyrarsvæðinu. Unnið er að því að fá styrk fyrir þessum námskeiðum frá Endurmenntunnarsjóði en takist það mun þátttökugjaldið minka stórlega. Ég geri sömuleiðis ráð fyrir að halda námskeið í Ágúst til að undirbúa fólk fyrir komandi vetur og útikennsluna og útieldunina þar.

Að sjálfsögðu er alltaf hægt að hafa samband og panta námskeið fyrir skóla, leikskóla, frístundaheimili eða hvað sem er með því að senda tölvupóst á gummif (hjá) gmail.com eða hringja í síma 895 2409

Námskeið á næstunni:

22. febrúar - Leiskólinn Andabær á Hvanneyri, kennaranámskeið
9. mars - Flataskóli, kennaranámskeið

Apríl - námskeið í útieldun á vegum náttúruskóla RVK, á eftir að staðfesta dagsetningu

13. maí - 13:00 opið námskeið í útieldun og útikennslu á höfuðborgarsvæðinu , fyrir alla sem hafa áhuga. - Þetta er uppstigningardagur og lendir á fimmtudegi.

19. ágúst - 13:00 opið námskeið í útieldun og útikennslu á höfuðborgarsvæðinu, fyrir alla sem hafa áhuga.
21. ágúst - 13:00 opið námskeið í útieldun og útikennslu fyrir norðan - Akureyri - fyrir alla sem hafa áhuga.

Póstlisti fyrir útieldhús.is 0

feb.2

Nú er hægt að skrá sig á póstlista síðunnar.
Þeir sem eru skráðir á listann fá upplýsingar um nýjar uppskriftir, nýjar greinar og að sjálfsögðu um næstu námskeið.

Til að skrá sig er hægt að smella hér: Skráningarform fyrir póstlista - smella hér

Ný vefverslun 0

feb.1

Nú hefur opnað ný vefverslun með nokkra hluti frá úteldhúsinu.

Verslunina er hægt að finna hérna: Vefverslun smella hér

Bætt verður við vöruúrvalið eftir þörfum. Vonandi mælist þessi nýjung vel fyrir.

Skemmtilegur poki sem hægt er að fá í vefversluninni.

Skemmtilegur poki sem hægt er að fá í vefversluninni.

Gleðilegt nýtt ár - dagskrá ársins að koma upp 0

jan.20

Nú er árið liðið og komin tími til að skipuleggja nýtt ár. Ég geri ráð fyrir að halda tvö opin námskeið í Maí, Náttúruskólinn verður með námskeið í apríl og svo verða tvö námskeið í haust (ágúst). Eins og er er ekkert skipulagt annarstaðar en í Rvk en áhugasömum er bent á að hafa bara samband. Nokkrir leikskólar og skólar hafa lýst yfir áhuga á að fá námskeið fyrir sig á sínu svæði og það er alltaf skoðað vel.
Hægt er að hafa samband í tölvupósti gummif(hjá)gmail.com

Takk fyrir frábær námskeið í dag. 4

nóv.28

Núna er lokið tveimur af þremur helgarnámskeiðum. Ég hef notið þess að vera með góðum hópum leikskóla og grunnskólakennara auk þess sem starfsfólk frístundaheimila var með í hópunum. Við bökuðum brauð og köku, poppuðum, bjuggum til ís og elduðum fisk og grænmeti. Veðrið lék við okkur og allir skemmtu sér vel.
Takk fyrir mig og ég vona að ég sjái sem flesta útivið í vetur.

Bréf til þátttakenda á námskeiði um helgina 0

nóv.25

Þetta bréf var ég að senda þátttakendum á námskeiði í útieldun og útikennslu sem að fram fer um helgina. Enn eru nokkur pláss laus á þessum námskeiðum svo að þeir sem eru áhugasamir geta enn sent mér póst og skráð þátttöku.

Sæll/sæl,

Þú ert skráður/skráð á námskeið í útieldun og útikennslu um helgina (28. eða 29. nóvember). Veðurspáin er mjög góð, engin úrkoma er í kortunum en það gæti orðið nokkuð kalt. Það ætti þó ekki að koma að sök enda verðum við með eldin til að orna okkur við og nóg af verkefnum til að vinna úr. Þó legg ég áherslu á að þú komir vel klædd/klæddur enda ekkert eins leiðinlegt og að verða kalt við vinnuna. Gott er að hafa góða fingravetlinga og að gleyma ekki húfunni og treflinum. Ef að þú ert með eitthvað fæðuóþol eða ofnæmi þá væri gott að vita af því fyrirfram svo að ég geti reynt að taka tillit til þess við innkaupin.
Námskeiðin fara öll fram við Laugarnesskóla í Reykjavík en kort af skólanum er hægt að sjá hér:
http://ja.is/kort/#q=laugarnessk%C3%B3li%20-%20laugarsel%20fr%C3%ADstundaheimili&x=359621&y=407845&z=9&type=aerial
Best er að leggja í bílastæði við Gullteig.

Hægt er að gera námskeiðið upp við komuna með peningum eða með því að leggja inn á reikning nr. 152-26-041015 kt. 170281-3659 og ekki er verra ef að bankinn sendir tölvupóst til staðfestingar á gummif@gmail.com. Það fá allir sem vilja kvittun fyrir gjaldinu og geta þá notað hana til að fá gjaldið endurgreitt frá skóla eða stéttarfélagi nú eða bara í heimilisbókhaldið.

Ef að það eru einhverjar spurningar þá endilega hafið samband annað hvort með því að senda póst til baka eða hringja í síma 895-2409.

Nú fer hver að verða síðstur að skrá sig!! 0

nóv.23

Námskeiðin verða núna um helgina. Boðið verður upp á tvö grunnskólakennara námskeið, eitt á laugardag og eitt á sunnudag en því miður þá fellur leikskólakennaranámskeiðið á sunnudaginn niður vegna ónógrar þátttöku. Það er enn hægt að skrá sig á öll hin námskeiðin. Eins og er þá lofar veðurspáin mjög góðu eins langt og hún nær og við gerum bara ráð fyrir því að hún haldist frábær.
Þeir sem hafa áhuga geta sent póst á gummif(hjá)gmail.com eða hringt í síma 8952409
Sjáumst

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com