Sráningin á námskeiðin í lok nóvember (28. og 29.) gengur vel en það eru enn laus nokkur pláss á öll námskeið. Námskeiðin eru ekki bara fyrir kennara því að starfsfólk frístundaheimila og félagsmiðstöðva er velkomið og að sjálfsögðu verður engum áhugasömum vísað frá.
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á gummif(hja)gmail.com og allar upplýsingar er að finna hér fyrir neðan eða í síma 8952409.
Ég fékk bréf þar sem ég var beðin um að setja inn upplýsingar um Dutch Oven eða Hollending eins og það hefur verið kallað hérna heima.
Hollendingar eru steypujárnspottar sem að hafa stutta fætur, þétt lok með smá brún og eru notaðir meðal annars til að baka í. Þá má reyndar nota til að elda hvað sem er í en vegna þess hvernig þeir eru hannaðir (það er að hægt er að setja kol bæði undir þá og ofnaá) þá er auðvelt að baka í þeim.
Þar sem ekki eru til neinar upplýsingar á íslensku svo ég viti til læt ég fylgja með nokkra tengla um efnið á ensku.
Wikipedia stendur alltaf fyrir sínu og gott er að byrja þar.
Nú fara næstu vikur að skýrast. Ég geri ráð fyrir því að vera með námskeið fyrir leik og grunnskólakennara í lok nóvember. Námskeiðið verður með svipuðu sniði og þau sem haldin voru fyrir norðan og áherslurnar svipaðar. Dagsetningin eins og er er 28. og 29. nóvember.
Boðið verður upp á tvö námskeið hvorn dag ef að skráning er nægilega góð.
Hægt er að skrá sig strax en frekari upplýsingar koma síðar. Skráning fer fram á gummif(hja)gmail.com
Hérna er ótrúlega spennandi hugmynd. Rocket Stove er einskonar eldavél sem að notar sprek sem eldivið. Með því að búa til mikinn trekk í eldhólfinu er hægt að brenna sprekinu með mun hreinni bruna og fá meiri hita. Ég er að prófa að setja saman svona eldavél með því að nota bara niðursuðudósir. Hérna eru nokkur myndbönd sem að útskýra þetta betur.
Þessi hópur kom til mín í heimsókn fyrir nokkrum vikum og fékk að prófa smá útieldun. Þau fóru svo í ferð þar sem eitt af verkefnunum var að elda spennandi hádegisverð á prímus. Hérna eru nokkrar myndir frá þeirri ferð.
Ég er nú farin að undirbúa námskeið í útikennslu og útieldun sem að haldið verður á höfuðborgarsvæðinu.
Námskeiðin verða í svipuðum dúr og þau sem haldin hafa verið fyrir norðan með áherslu á eldinn, að kveikja eld og vinna með hann. Að sjálfsögðu fer engin svangur af námskeiðinu.
Þá er einnig í undirbúningi námskeið sem að hægt er að fara með til skólanna. Þau væru þá hugsuð þannig að skólinn geti keypt námskeið fyrir alla kennarana sína. Ég kem þá eftir samkomulagi og við notum þá aðstöðu sem fyrir er og verðið er ekki háð þátttöku.
Ég vona að þessi námskeið falli í góðan jarðveg.
Um helgina hélt ég námskeið í útieldun fyrir kennara á Genivík. Ég fékk reyndar nokkra kennara í viðbót frá Litlulaugaskóla og frá Lundaskóla en aðalega voru þetta kennarar frá gunnskólanum og leikskólanum á Grenivík. Við notuðum nýtt eldstæði sem að kennrarnir eru að útbúa við skólan og nutum þess að vera við eldamennskuna í frábæru veðri.
Matseðillinn var fjölbreyttur að vanda. Við bökuðum brauð í Hollendingnum, bjuggum til laxakökur í forrétt, svínamedalíur með eplum, rúsínum og steiktu grænmeti í aðalrétt og bakaðar perur með ís eftrirétt. Ég hafði verið með smá áhyggjur af veðrinu en þær reyndust algjörlega óþarfar. Raunar svo óþrfar að við nutum þess að borða ísinn og perurnar úti í sólskyni og frábæru veðri.
Eldstæðið við Genivíkurskóla. Allt í gangi
Við pönnusteiktum smá brauð með laxinum og bjuggum til enfalda sósu úr sýrðum rjóma, grísku jógúrti og dilli.
Brauðið tilbúið.
Á meðan við biðum eftir perunum var smá tími til að smakka brauðið. Uppskriftin var frá Anítu frænku.
Flottur hópur í fræabæru veðri með ótrúlegt útsýni
Ég þakka fyrir mig. Það eru forréttindi að fá að koma á eins flottan stað og Grenivík og njóta þess að vera úti að elda með jafn frábærum hópi. Ég hlakka til að fá að koma aftur.
Ég fékk heimsókn frá kennurum í skólahverfi Laugarnesskóla á föstudaginn. Það var starfsdagur hjá þeim (en ekki hjá mér) svo að þeir fengu að taka þátt í kennslustund með 4. bekk. Við fórum út að eldstæði og gerðum kakó og popp. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og ég er ekki frá því að kennararnir hafi skemmt sér mjög vel.