Article written

  • on 10.07.2010
  • at 07:53 e.h.
  • by gummif

Takk fyrir mig Þjóðlagahátíð 0

júlí10

Ég fékk að vera á þjóðlagahátíð á Siglufirði í vikunni. Þar var ég með útieldunarnámskeið sem reyndar var að hluta til inni vegna veðurs. Fyrri daginn var úrhellisrigning þannig að við fengum inni í kennslueldhúsi grunnskólans. Við gátum samt notað útiaðferðir, settum hollendinginn í ofninn og notuðum Muurikkuna bara inni.

Seinni daginn vorum við úti og nutum þess að vera í logni og blýðu við Síldarminnjasafnið.

Hópurinn sem ég var með var ótrúlega áhugasamur og mjög skemmtilegur og ég þakka þeim fyrir þátttökuna og þolinmæðina. Helda meira að segja að þau hafi lært eitthvað.

Ég þakka fyrir mig, bæði Þjóðlagahátíðinni, Siglufjarðarbæ og Síldaminnjasafninu. Vonandi sjáumst við aftur.

subscribe to comments RSS

There are no comments for this post

Ekki hika við að segja hvað þér finnst .

* these are required fields

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com