Um útieldhús.is 0
Útieldhús.is er heimasíða frá Guðmundi Finnbogasyni. Guðmundur er heimilisfræðikennari við Laugarnesskóla í Reykjavík. Hann er skáti og áhugamaður um útieldun. Auk þess að kenna grunnskólanemum að elda kennir hann kennurum og öðrum áhugasömum að njóta útiveru og matargerðar.
Hann hefur meðal annars kennt á námskeiðum Náttúruskóla Reykjavíkur, við Gilwell skóla skáta og við ýmis önnur tækifæri.
Vorið 2008 fór hann á námskeið hjá The Royal Tine leiðsögumanna og kokkaskólanum í Bandaríkjunum.
Útieldhús.is er ætlað að hýsa ýmiskonar fróðleik um útieldun, matargerð og útivist. Þá verður einnig reynt að miðla kennslufræðilegum upplýsingum sem lúta að útieldun, heimilisfræði og útikennslu. Kennarar og aðrir eru því hvattir til að miðla upplýsingum, áugaverðum sögum og hverju sem að þótt gæti skemmtilegt.
Hægt er að hafa samband við Guðmund með tölvupósit á gummif(hjá)gmail.com
subscribe to comments RSS
There are no comments for this post