Article written

  • on 25.08.2009
  • at 11:24 f.h.
  • by gummif

Útikennsluskólar 0

ág.25

Hér er listi yfir þá skóla sem að stunda útikennslu í heimilisfræði eða útieldun. Þetta er ekki tæmandi listi og kennarar hvattir til að senda inn upplýsingar um sinn skóla og tengilið svo að við getum lært hvert af öðru.

Höfuðborgarsvæðið:

Laugarnesskóli - Útieldun sem hluti af heimilisfræði, útieldun sem hluti af ýmsum þemaverkefnum og ýmsum örðum verkefnum.
Aðstaðan sem er fyrir hendi: Eldstæði á skólalóð og góður útbúnaður til útieldunar s.s. prímusar, Hollendingar, muurikka panna og öll eldhús áhöld.
Heimilisfræðikennari og tengiliður: Guðmundur Finnbogason gummif (hjá) gmail.com

Langholtsskóli - þar er núna unnið að gerð útikennslustofu. Tveir kennara við skólan eru að hanna og vinna að útikennslustofu í skógarrjóðri á lóð skólans. Unnið er með efni af lóðinni. Þetta er spennandi verkefni sem að gaman verður að fylgjast með.

Sjálandsskóli - Útikennsla við skólan er mjög markviss. Farið er reglulega út og unnið í mörgum námsgreinum með náttúruna og nágrennið. Skólinn er með eldstæði á lóðinni  en kennarar fara einnig í stuttar ferðir í Gálgahraun og taka þá gjarnan með stórt topptjald sem að hægt er að bregða sér inn í til að borða nesti. Hægt er að hafa samband við marga kennara við skólan auk skólastjórans til að fá frekari upplýsingar. sjalandsskoli(hjá)sjalandsskoli.is

Varmárskóli - Kennd er útiheimilisfræði í fyrstafloks aðstöðu. Skólinn státar af fýnu eldstæði og sérútbúinni aðstöðu þar sem heimilisfræði er kennd markvisst og reglulega.
Hægt er að sjá myndir hér: http://www.varmarskoli.is/utikennslan0809.htm og hér: http://www.varmarskoli.is/utikennsla20092010.html
Heimilisfræðikennari skólans hún Guðrún heldur úti heimasíð sem hægt er að sjá hér: http://www.ismennt.is/not/gudrunsi/index.html Þar er meðal annars fjallað um útikennslu hennar.

Sæmundarskóli

Norðlingaskóli

Suðurland

Borgarskóli

Leikskólinn Ásheimar Selfossi

Norðurland

Hrafnagilsskóli -  Við skólan er Aldísarlundur þar sem búið er að koma upp frábærri aðstöðu til útikennslu. Þar er auk eldstæðis yfirbyggt svið og í brekkunni fyrir framan er auðvelt að koma fyrir fjölmörgum áhorfendum. Þetta svæði er til fyrirmyndar fyrir utan að vera staðsett í fallegjum skógji. Við skólan er stunduð útikennsla í mörgum greinum. Hægt er að hafa samband við Anítu Jónsdóttur anita(hjá)krummi.is til að fá frekari upplýsingar.

Þelamerkurskóli

Grenivíkurskóli - Kennarar við Grenivíkurskóla eru búnir að koma sér upp skemtilegu eldstæði fyrir utan skólan og eru að vinna í enn flottara útikennslusvæði í litlum Greniskógji aðeins frá skólanum. Þar er kennd útieldun ásamt því sem aðrar greinar fara út eftir því sem við á.

Austurland

Vesturland

Vestfirðir

subscribe to comments RSS

There are no comments for this post

Ekki hika við að segja hvað þér finnst .

* these are required fields

Útieldhús.is is powered by WordPress and FREEmium Theme.
developed by Dariusz Siedlecki and brought to you by FreebiesDock.com